Burnley komið í Meistaradeildarsæti Henry Birgir Gunnarsson skrifar 12. desember 2017 21:30 Jóhann Berg í baráttu við Erik Pieters í kvöld. Vísir/Getty Ævintýratímabil Burnley hélt áfram í kvöld er liðið vann sterkan 1-0 sigur á Stoke City í kvöld. Það var Ashley Barnes sem skoraði eina mark leiksins einni mínútu fyrir leikslok. Jóhann Berg Guðmundsson var í liði Burnley sem fyrr og lék allan leikinn. Burnley er nú komið með 31 stig í fjórða sæti deildarinnar og hoppaði upp fyrir Tottenham, Arsenal og Liverpool með sigrinum í kvöld en er augljóslega búið að leika einum leik meira. Enski boltinn