Fjárlög fyrir árið 2018 samþykkt á Alþingi Ingvar Þór Björnsson skrifar 30. desember 2017 09:51
Fjárlög fyrir árið 2018 voru samþykkt á Alþingi í gærkvöldi. Í nýsamþykktu fjárlagafrumvarpi koma fram áherslur nýrrar ríkisstjórnar á ýmis lykilverkefni sem kveðið er á um í stjórnarsáttmálanum. Fjárlög voru samþykkt með tæpum 33 milljarða króna afgangi, eða um 1,2% af landsframleiðslu. 55,3 milljarða króna aukin fjárframlög voru samþykkt ef miðað er við fjárlög fyrra árs. Um er að ræða 19 milljarða króna aukningu frá því fjárlagafrumvarpi sem lagt var fram í haust. Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins kemur fram að fjárlögin endurspegli sterka stöðu efnahagsmála með áformum um skuldalækkun ríkissjóðs á sama tíma og brugðist er við ákalli um auknar fjárveitingar í mikilvæga samfélagslega innviði. Þá segir einnig að með samþykkt fjárlaga séu stigin fyrstu skrefin í langtímastefnu ríkisstjórnarinnar þar sem lögð er megináhersla á að varðveita efnahagslegan stöðugleika, styrkja innviði, renna stoðum undir samkeppnishæfni Ísland til framtíðar og auka stuðning við menntun og nýsköpun.Átta milljarða króna aukning til heilbrigðismála frá síðasta fjárlagafrumvarpiHeildaraukning til heilbrigðismála frá síðustu fjárlögum er 22 milljarðar króna sem skiptist meðal annars þannig að til heilsugæslunnar rennur 2,3 ma. kr., í sjúkrahúsþjónustu 8,8 ma. kr., í lyf 5,4 ma. kr. og í tannlækningar 500 milljónir króna. Aukning frá síðasta fjárlagafrumvarpi í heilbrigðismálum eru 8 milljarðar króna og skiptist þannig að til sjúkrahúsþjónustu renna þrjár milljarðar króna, í heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa 1,3 milljarðar króna, í hjúkrunar- og endurhæfingarþjónustu 360 milljónir króna, í lyf og lækningavörur 3 milljarðar krónar og í lýðheilsu og stjórnsýslu velferðarmála fara 270 milljónir króna. Viðmiðunarfjárhæðir barnabóta hækka um 8,5% og tekjuviðmiðunarmörk um 7,4%. Þannig munu greiðslur til einstæðs tveggja barna foreldris á lágmarkslaunum hækka um rúmlega 12% á ári. Frítekjumark fyrir aldraða verður þegar hækkað úr 25 þúsund krónum í 100 þúsund krónur um áramótin.Aukning í menntamálum nemur 4,1 milljarðiAukning í menntamálum frá síðustu fjárlögum nemur 4,1 milljarði króna. Af þeim fara 2,9 milljarðar króna til háskólastigsins og einn milljarður til framhaldsskólastigsins. Jafnframt verða 250 milljónir króna veittar vegna efniskostnaðar framhaldsskóla og 450 milljónir króna til máltækniverkefnis til þess að stuðla að því að íslenska verði gjaldgeng í stafrænum heimi. Þá ber að geta þess að til úrbóta í málefnum brotaþola kynferðisofbeldis renna samtals 376 milljónir króna til nokkurra málefnasviða, meðal annars innan löggæslu, heilbrigðiskerfisins og réttarkerfisins. Í eflingu Alþingis er veitt 22,5 m. kr. framlag til þess að styrkja löggjafar, fjárstjórnar- og eftirlitshlutverk þingsins. Aukið framlag til þingflokka nemur 20 milljónum króna.298 m. kr. framlag til innleiðingar aðgerðaáætlunar um úrbætur í meðferð kynferðisbrotaÞá er veitt 298 milljóna króna framlag til innleiðingar aðgerðaráætlunar um úrbætur í meðferð kynferðisbrota. Framlagið skiptist í 178 milljóna króna framlag til að styrkja innviði lögreglu á sviði rannsóknar kynferðisbrotamála, 80 milljóna króna framlag til uppbyggingar upplýsingatæknikerfis fyrir réttarvörslukerfið og 40 milljónir króna renna tímabundið til uppfærslu rannsóknarhugbúnaðar, upplýsinga og gæðastaðla lögreglu. Framlag til héraðssaksóknara er aukið um 38 m. kr. sem ein fjölmargra aðgerða til innleiðingar aðgerðaáætlunar um úrbætur í meðferð kynferðisbrota. Framlaginu er ætlað að styrkja innviði embættisins til að bæta ákærumeðferð kynferðisbrota í samræmi við áherslur sem fram koma í aðgerðaáætluninni. Framlag til aðalskrifstofu dómsmálaráðuneytisins er aukið um 20 milljónir króna til að styrkja framkvæmd aðgerðaáætlunar um úrbætur í meðferð kynferðisbrota og vinnu við fullgildingu Istanbúl-samningsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnar.Fjárheimild á sviði sjávarútvegsmála hækkar um 90 milljónir krónaHvað varðar uppbyggingu í vegamálum verður 2,3 milljörðum króna varið til viðbótar í framkvæmdir á vegum umfram það sem gert var ráð fyrir í frumvarpi fráfarandi ríkisstjórnar. Þá er fjárheimild á sviði sjávarútvegsmála hækkuð um 90 milljónir króna vegna framlags til vöktunar vegna mögulegrar erfðablöndunar frá laxeldi í sjókvíum. Aukið fjárframlag til umhverfismála frá fyrra fjárlagafrumvarpi nemur 334 milljónum króna. Einnig var 150 milljóna króna tímabundið framlag til þjóðgarðsmiðstöðar á Hellissandi framlengt. Til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála fara 18 milljónir króna og 20 milljónir króna í stofnun nýs loftslagsráðs.
Mest lesið Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Mennirnir tveir fundnir Innlent Mættur í Samfylkinguna Innlent Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Innlent Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Innlent Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Erlent Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Innlent Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu Innlent Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Innlent Fleiri fréttir Ekki hægt að aldursskipta börnum á Stuðlum í miðjum stormi „Skítastaða“ á Stuðlum, vongóðir nýliðar og búð þar sem allt er ókeypis „Það verður að láta reyna á þessar kærur“ Listamaðurinn Jón Gnarr hættir og pólitíkusinn tekur við Líf segir söguna um stóladans Mörtu og Hildar dagsanna Hlaut varanlegan skaða vegna myglu en fær ekki krónu Marta hafnar því alfarið að hafa ítrekað sest í stól Hildar Unglingar á ofsahraða reyndu að stinga lögregluna af Mennirnir tveir fundnir Hólmfríður ætlar í ritara VG Til skoðunar að beita refsisköttum á nikótínpúða Malbika bílastæðin í Reynisfjöru Fluttur með þyrlu eftir bílveltu á Snæfellsnesi Ríkisstjórnin sameini það versta frá bæði vinstri og hægri „Íslenska vegakerfið er líklega hættulegasti ferðamannastaður landsins“ Starfshópur skipaður vegna slysa hjá ferðamönnum Veitingastaður ber ekki ábyrgð á hnefahöggi starfsmanns Má ekki eyða myndböndum sem mátti ekki taka Laxalúsin sækir í sig veðrið fyrir vestan Grunur um að fiskar úr landeldi hafi komist í sjó Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Mættur í Samfylkinguna Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Einn af 103 ökumönnum reyndist yfir mörkum Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Sjá meira