Hóta að fækka þýskum liðum í Meistaradeildinni niður í eitt Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. nóvember 2017 15:00 Leikjaálagið truflar þennan reyndar lítið. vísir/getty
Svo gæti farið að aðeins eitt þýskt lið taki þátt í Meistaradeildinni í handbolta á næstu leiktíð en ekki þrjú eins og hefur verið undanfarin ár. Frá þessu greinir handboltavefurinn Handball-World. Þetta eru vitaskuld risastórar fréttir enda þýska deildin sú langstærsta og langbesta í heiminum en þýska handknattleikssambandið og það evrópska virðast ekki ætla að komast að samkomulagi um leikjadagskrá næsta tímabils. Samkvæmt heimildum Handball-World áttu viðræður sér staða í gær á milli stærstu félaga Evrópu og forráðamanna EHF en stærsta deilumálið var hvernig skal hagræða leikjum í kringum þýsku deildina. EHF vill ekki lengur gefa eins mikið eftir og það hefur gert áður þegar kemur að því að semja við þá þýsku og nú gæti svo farið að þýskum liðum verði hreinlega fækkað úr þremur í eitt. Leikjaálagið á þýsku liðunum er mikið og til að staðfesta hversu skrítin og erfið leikaniðurröðunin er fyrir þau þarf ekki að horfa lengra fram veginn en um næstu helgi. Þýskalandsmeistarar Rhein-Neckar Löwen eiga leik á móti Leipzig á laugardaginn klukkan 17.10 að íslenskum tíma og þegar þeim leik er lokið verður innan við sólarhringur þar til liðið mætir Barcelona í Meistaradeildinni. Málinu er ekki lokið en vonast er til þess að forráðamenn þýska sambandsins og EHF ræði betur saman á þingi Alþjóðahandknattleikssambandsins um næstu helgi.
Handbolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira