Segir Lukaku ekki nógu góðan til að spila fyrir Manchester United Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. maí 2017 15:00 Romelu Lukaku skorar og skorar en er ekki nógu góður fyrir United. vísir/getty
René Meulensteen, fyrrverandi aðstoðarknattspyrnustjóri Manchester United og aðalþjálfari liðsins, telur Romelu Lukaku, framherja Everton, ekki nógu góðan til að spila fyrir United. Hann skorar mörk en það er ekki nóg. Lukaku er á leið frá Everton eftir tímabilið en Belginn hefur verið orðaður við United sem leitar sér vafalítið að framherja vegna meiðsla Zlatans Ibrahimovic. Lukaku er búinn að skora 24 mörk í ensku úrvalsdeildinni en Zlatan er markahæstur allra hjá United með 17 deildarmörk. Meulensteen var aðstoðarmaður Sir Alex Ferguson frá 2007-2013 og hjálpaði liðinu að vinna þrjá enska meistaratitla og Meistaradeildina. Hann þykist vita hvað þarf til að spila fyrir United og Lukaku hefur ekki allt sem þarf. „Ekki misskilja mig, Lukaku hefur spilað frábærlega og er markaskorari. Þú þarft bara svo miklu fleiri vopn ef þú ætlar að spila fyrir United. Hann þarf að bæta sig þegar hann er með boltann og að geta spilað stutt með samherjum sínum,“ segir Meulensteen í viðtali á talkSPORT. „Hann er ekki nógu góður í þessu en þetta kemur ekki í ljós þegar hann spilar fyrir lið eins og Everton. En þegar þú spilar með bestu liðunum þurfa ákvarðanatökur á síðasta þriðjungi og allar fínhreyfingar að vera hundrað prósent í lagi.“ „Lukaku kæmi vissulega með kraft og styrk inn í liðið en það sjá allir að hann er ekki líkur þeim framherjum sem United hefur verið með í gegnum tíðina,“ segir René Meulensteen.
Enski boltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Sjá meira