Vilja að Ísland skrifi undir bann við kjarnorkuvopnum Hrund Þórsdóttir skrifar 10. ágúst 2017 20:00
Friðarsinnar fleyttu kertum á Reykjavíkurtjörn og víðar um landið í gærkvöldi til að minnast fórnarlamba kjarnorkuárásanna í Hírósíma og Nagasakí og árétta kröfuna um heim án kjarnorkuvopna. Kertafleytingin fór nú fram í þrítugasta og þriðja sinn, en í ár eru liðin sjötíu og tvö ár síðan kjarnorkusprengjum var varpað á borgirnar Hírósíma og Nagasakí í Japan. Kertafleytingin sem hefð er upprunnin í Japan, en athafnir af þessu tagi fara fram víða um heim og að þessu sinni á þremur stöðum hér á landi; á Akureyri og Ísafirði og við Tjörnina í Reykjavík. Hundrað tuttugu og tvö aðildarríki Sameinuðu þjóðanna gerðu nýlega sáttmála um bann við kjarnorkuvopnum og krafa íslenskra kjarnorkuvopnaandstæðinga er að Ísland gerist aðili að samkomulaginu án tafar með því að skrifa undir sáttmálann. Halla Gunnarsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur, flutti ávarp í gærkvöldi og sagði meðal annars að spegla yrði nútíðina í fortíðinni. „En við erum líka hér til að neita að gleyma undirbúningnum og ákvörðununum sem voru teknar í aðdragandanum. til að setja spurningamerki í hvert sinn sem okkur er tjáð að eitthvað sem við vitum að skaddar fólk sé nauðsynlegt. Annað sé ómögulegt,“ sagði Halla meðal annars. Í meðfylgjandi sjónvarpsfrétt má sjá fallegar myndir Egils Aðalsteinssonar, myndatökumanns Stöðvar 2, frá viðburðinum, auk viðtala við þátttakendur í kertafleytingunni.
Mest lesið Maður stunginn í brjóstkassann í nótt Innlent Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Innlent „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Innlent Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Innlent Segir Harris veika á geði Erlent Þriðjungur þunglyndra náði fullum bata með „heilasjúkraþjálfun“ Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Sæbraut Innlent Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn Innlent Vegfarandinn er látinn Innlent Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Innlent Fleiri fréttir Vegfarandinn er látinn Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn Staða karlmennskunnar, kosningavetur og átök í Mið-Austurlöndum Talaði fyrir „tveggja ríkja lausn“ á allsherjarþingi Þriðjungur þunglyndra náði fullum bata með „heilasjúkraþjálfun“ Hlaupið í rénum en gasmengun gæti verið á svæðinu Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Ekið á gangandi vegfaranda við Sæbraut Maður stunginn í brjóstkassann í nótt „Við vitum ekki neitt og höldum bara áfram að bíða“ Ótrúlegt myndband af gæsaflokki á flugi Ávaxtakarfan frumsýnd í Hveragerði Lítið jökulhlaup hafið í Skálm Uppgjör á hægri vængnum: „Ægishjálmur Sjálfstæðisflokksins“ ekki lengur veruleikinn Sundrun á hægri vængnum og örvænting meðal fyrstu kaupenda Verslaði fyrir háar upphæðir með stolnu kreditkorti „Ég hitti ungt fjölskyldufólk sem er gjörsamlega að kikna“ Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Ullarvika til heiðurs íslensku sauðkindinni „Óþekku börnin frá Grindavík“ vakti úlfúð Verkfall á hjúkrunarheimilum ef lausn næst ekki á mánudag „Verðmæti fólgin í því að halda Reykjanesbraut opinni“ Úrbætur á gæsluvarðhaldsúrræði fyrir unglinga og upphaf körfuboltatímabilsins Skoða betri úrræði fyrir unglinga í gæsluvarðhaldi Brotthvarf Katrínar hafði mikil áhrif Hafði „útdraganlega kylfu“ meðferðis Nýliðar hlakka til að láta að sér kveða: „Finnst vanta fólk eins og mig“ Draumurinn að fríbúðir skjóti upp kollinum um alla borg Ekki hægt að aldursskipta börnum á Stuðlum í miðjum stormi „Skítastaða“ á Stuðlum, vongóðir nýliðar og búð þar sem allt er ókeypis Sjá meira