Eigendur Manchester United selja hluti í félaginu fyrir 7,7 milljarða króna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. ágúst 2017 09:00 Joel og Avram Glazer eru eigendur Manchester United. Vísir/EPA
Bandarískir eigendur enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United ætla í næstu viku að selja um tvö prósenta hlut í félaginu í kauphöllinni í New York. Tvö prósent í Manchester United eru virði um 72,89 milljóna dollara eða 7,7 milljarða íslenskra króna. Manchester United fær ekkert af tekjunum af sölunni á þessum hlutum heldur renna peningarnir beint í vasa Glazer-fjölskyldunnar. Það munu því streyma peningar inn á reikninga fjölskyldunnar í næstu viku. BBC segir frá. Glazer fjölskyldan keypti Manchester United fyrir tólf árum síðan á 790 milljónir punda en undanfarið hafa þessir amerísku eigendur verið að selja hluti í félaginu. Kaupin þeirra voru umdeild og óvinsæl meðal stuðningsfólks Manchester United á sínum tíma og fjölskyldumeðlimir verða ekkert vinsælli eftir að hafa grætt 7,7 milljarða á einu bretti með sölunni á þessum hlutum. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Glazer fjölskyldan fer þessa leið. Árið 2012 seldi fjölskyldan um tíu prósent af hlutunum í United og hún hefur síðan haldið uppteknum hætti síðustu ár. Eftir söluna í næstu viku þá hefur Glazer fjölskyldan selt samtals um tuttugu prósent af hlutum sínum í Manchester United. Manchester United hefur verið duglegt á félagsskiptamarkaðnum í sumar og snýr nú aftur í Meistaradeildina eftir árs fjarveru. United er einnig líklegt til að blanda sér á ný í baráttuna um enska meistaratitilinn en liðið hefur ekki verið í hóp þriggja efstu liðanna undanfarin fjögur tímabil.
Enski boltinn Mest lesið Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó Íslenski boltinn Sjáðu fyrstu mörk Orra Steins í treyju Real Sociedad Fótbolti Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti „Ábyrgðin er mín“ Fótbolti Lélegasta lið sögunnar: „Augljóslega er þetta ömurlegt“ Sport Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Enski boltinn Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Enski boltinn Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Fótbolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu deild karla og málin gerð upp í Bestu mörkunum Sport Fleiri fréttir Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Stuðningsmaður safnað milljónum eftir að völlur félagsins skemmdist Markvarslan Alisson í blóð borin Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Sjá meira