Innlent

Eldur kom upp í Bankastræti

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Slökkvilið athafnar sig í Bankastræti í dag.
Slökkvilið athafnar sig í Bankastræti í dag. Vísir/Hulda Hólmkelsdóttir
Allt tiltækt slökkvilið var kallað til þegar eldur kom upp í húsi við Bankastræti í miðbæ Reykjavíkur á fjórða tímanum í dag.

Fulltrúi frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir síðar hafa komið í ljós að ekki þurfti á öllu tiltæku liði að halda. Því var aðeins einn slökkviliðsbíll sendur á staðinn til að slökkva eld og reykræsta.

Eldurinn kviknaði út frá kerti og barst að því búnu í gardínur. Engin slys urðu á fólki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×