Sigtryggur frábær í ellefu marka sigri Aue Kristinn Páll Teitsson skrifar 23. apríl 2017 17:47 Sigtryggur hefur verið afar öflugur að undanförnu. mynd/aue
Sigtryggur Rúnarsson var potturinn og pannan í sóknarleik Aue í 36-25 sigri á Saarlouis í þýsku 2. deildinni í handbolta í dag en hann skoraði tíu af mörkum Aue í leiknum. Aue náði sex marka forskoti undir lok fyrri hálfleiks í stöðunni 17-11 og var í raun aðeins formsatriði að klára seinni hálfleikinn þar sem sigurinn var aldrei í hættu. Sigtryggur fór fyrir sínum mönnum með tíu mörk úr tíu skotum en Árni Þór Sigtryggsson var með þrjú mörk úr fimm skotum. Bjarki Már Gunnarsson komst ekki á blað í leiknum. Í efstu deild gat Rúnar Kárason ekki komið í veg fyrir tap Hannover-Burgdorf gegn Gummersbach á útivelli en leiknum lauk með 30-26 sigri Gummersbach sem leiddi með sama mun í hálfleik. Rúnar komst á blað með eitt mark í leiknum ásamt því að fá eina brottvísun en þetta var ellefta tap liðsins í röð eftir góða byrjun í deildinni en fyrir vikið hefur liðið sogast niður töfluna undanfarnar vikur. Í annarri deildinni unnu Oddur Gretarsson og félagar í Emsedetten á heimavelli 29-26 í Íslendingaslag gegn Fannari Friðgeirssyni og félögum í ASV Hamm-Westfalen en Oddur var meðal markahæstu manna í liði Emsdetten með fimm mörk úr fimm skotum. Fannar komst á blað með tvö mörk úr fimm skotum. Í Hüttenberg átti Ragnar Jóhannsson flottan leik í 34-28 sigri heimamanna gegn Neuhausen en með sigrinum fer Huttenberg upp í 3. sæti deildarinnar með 43. stig ásamt því að eiga leik til góða á Rimpar í baráttunni um 3. og síðasta sætið sem kemur liðum upp í efstu deild. Í Bietigheim varði Aron Rafn Eðvarsson fjóra bolta af 19 í 25-24 sigri Bietigheim-Metterzimmern gegn Leutershausen en Bietigheim-Metterzimmern er í harðri baráttu um að komast upp í efstu deild.
Handbolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira