Innlent

Lést eftir fall úr byggingarkrana í Hafnarfirði

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Vísir
Karlmaður lést eftir fall úr byggingarkrana á vinnusvæði í Hafnarfirði í gær. Tilkynning um slysið barst síðdegis og héldu lögreglan og sjúkraflutningamenn þegar á vettvang og hófu endurlífgunartilraunir, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu.

Maðurinn var síðan fluttur á Landspítalann þar sem hann var úrskurðaður látinn. Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. Lögreglan og Vinnueftirlitið rannsaka tildrög slyssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×