Defoe aftur til Bournemouth eftir sextán ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. maí 2017 19:39 Skórnir hans Jermain Defoe eru ekkert á leiðinni upp á hillu. Hann telur sig eiga nóg eftir. Vísir/Getty
Sunderland er fallið úr ensku úrvalsdeildinni en skærasta stjarna liðsins, Jermain Defoe, mun ekki fylgja liðinu niður í ensku b-deildina. Jermain Defoe nýtti sér klásúlu í samningi sínum nú þegar Sunderland spilar ekki lengur í ensku úrvalsdeildinni. Hann fer því á frjálsri sölu. Defoe hefur gert þriggja ára samning við Bournemouth sem ætti að skila honum á endanum 20 milljónum punda eða 2,6 milljörðum íslenskra króna. Enskir miðlar eins og Guardian segja frá þessu í kvöld. Defoe er orðinn 34 ára gamall en vill spila áfram í ensku úrvalsdeildinni enda var hann í frábæru formi í vetur. Watford og Crystal Palace höfðu líka áhuga en hann valdi að semja við Bournemouth sem endaði í 9. sæti í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Jermain Defoe kom til Sunderland í janúar 2015 eftir að hafa reynt fyrir sér hjá kanadíska félaginu Toronto FC. Defoe lék í tvö og hálft tímabil með liðinu og skoraði 34 mörk í 83 deildarleikjum. Defoe skoraði fimmtán mörk á nýloknu tímabili en það dugði ekki til að bjarga Sunderland frá falli. Defoe er þarna að snúa aftur til Bournemouth. Hann var aðeins átján ára gamall þegar hann kom þangað á láni frá West Ham tímabilið 2000-01. Defoe fór á kostum með liðinu og skoraði 19 mörk í 33 leikjum í ensku C-deildinni.
Enski boltinn Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira