Innlent

Pólitíska ábyrgðin verður rannsökuð

Sigurður Mikael Jónsson skrifar
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að komist verði til botns í OR-hneykslinu með einum eða öðrum hætti.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að komist verði til botns í OR-hneykslinu með einum eða öðrum hætti. vísir/anton brink
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að hann og meirihlutinn í borginni séu samstíga um að tryggja að öllum útistandandi spurningum um Orkuveituhúsið verði svarað, þegar dómkvaddur matsmaður hefur lokið úttekt sinni. Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sakar meirihlutann um að reyna að tefja opinbera rannsókn á tjóni höfuðstöðvanna og svæfa málið. Dagur vísar því á bug.

Meirihlutinn vísaði á fundi borgarstjórnar á þriðjudag tillögu Sjálfstæðisflokksins um ítarlega opinbera rannsókn og tillögu Framsóknar og flugvallarvina um úttekt á tjóninu til borgarráðs. Dagur segir að flestir hafi verið sammála um að fyrsta skrefið væri að leyfa dómkvöddum matsmanni að ljúka sinni vinnu fyrst.

„Verkefni hans myndu skarast við hugmyndir um úttektir þannig að matsmaður mun byrja og við kryfja til mergjar þær spurningar sem hugsanlega standa eftir. Það er alger samstaða um það í borgarstjórn að komast til botns í þessu máli og rannsaka það til hlítar.“

Borgarfulltrúar fyrri og seinni tíma verða ekki undanþegnir slíkri rannsókn enda ólíklegt að dómkvaddur matsmaður muni leggja mat á þátt kjörinna fulltrúa.

Mikill pólitískur þrýstingur var á að byggingu OR-hússins yrði lokið á tilsettum tíma þar sem hún var þegar farin fram úr kostnaðaráætlun. Líkt og Fréttablaðið hefur fjallað um virðist þetta hafa komið niður á vinnubrögðum. En er ekki sjálfsagt að skoða hina pólitísku ábyrgð líka?

„Jú, það er eitt af því sem verður skoðað í úttektinni,“ segir Dagur. „Og ef það er eitthvað sem dómkvaddur matsmaður fjallar ekki um munum við gera sérstaka úttekt. Ég mun einfaldlega tryggja að það verði komist til botns í því.“

Skotið hefur verið á Dag fyrir að vera eini borgarfulltrúi R-listans sem enn sitji í borgarstjórn. Flokksins sem réðst í framkvæmdina.

„Mér hefur fundist þessi málflutningur fremur ómerkileg tilraun til að dreifa athyglinni frá aðalatriðinu sem er að ákvörðunin um að byggja húsið var samþykkt þarna 1999–2000 með atkvæðum allra, líka Sjálfstæðisflokksins. Kjartan Magnússon er eini borgarfulltrúinn sem var í borgarstjórn þá.“ Sjálfur kveðst Dagur hafa verið í framhaldsnámi í Svíþjóð þegar ákvörðunin var tekin og Samfylkingin óstofnuð.

Fyrrverandi stjórnendur OR hafa gagnrýnt að húsið hafi fengið að grotna niður í viðhaldsleysi eftir hrun. Aðspurður hvort skorið hafi verið of mikið niður segir Dagur að nauðsynlegt sé að skoða það líka.

„En þangað til er óvarlegt að fullyrða hvort eitt frekar en annað skiptir máli í þessu. Stóra aðalatriðið er að þetta er mjög stórt tjón, mjög alvarlegt mál sem þarf að komast til botns í. Það er sannarlega sorglegt hvernig komið er fyrir þessari byggingu og það að vesturálman standi auð er tákn um hversu illa þetta mál hefur farið.“ 


Tengdar fréttir

Smiðnum veitt skaðleysi fyrir að leggja parket á blaut gólfin

Húsasmíðameistarinn sem lagði parketið í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur segir aðvaranir hans um ástand gólfa í vesturhúsi höfuðstöðvanna hafi verið hundsaðar. Svo hafi legið á að ljúka framkvæmdum og opna húsið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×