Þetta gerðist þegar að Mikel hætti við að fara til United: „Hernaðaraðgerð“ og taska full af peningum Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. nóvember 2017 10:00 John Obi Mikel skrifaði undir við United en fór aldrei þangað sem leikmaður.
John Obi Mikel, fyrrverandi leikmaður Chelsea, hefur loks opnað sig um allt sem gerðist þegar að hann samdi við Manchester United árið 2005 en endaði svo í Chelsea. Uppákoma sem kostaði Chelsea á endanum 16 milljónir punda. Mikel var gríðarlega eftirsóttur unglingur í Noregi og Sir Alex Ferguson var mjög áhugasamur um að fá hann til liðs við sig. Hann fór á reynslu til United og skrifaði undir samning við enska stórliðið. Hann fékk 1,5 milljóna punda samning þrátt fyrir að vera aðeins að klára gagnfræðiskóla. Nígeríumaðurinn fór aftur heim, gekk í raðir Lyn og var einn besti leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar þrátt fyrir að vera aðeins táningur. Roman Abramovich var þarna nýbúinn að kaupa Chelsea og vildi fylla liðið sitt af bestu leikmönnum heims og þeim efnilegustu. Hann ætlaði sér að fá Mikel þrátt fyrir að hann væri búinn að skrifa undir við Manchester United og setti upp fund með leikmanninum og José Mourinho. „Roman Abramovich sendi sex bíla að sækja mig. Þetta var eins og hernaðaraðgerð. Ég byrjaði á því að fara í einn bílinn, svo töluðu bílstjórarnir saman, ég var skilinn eftir á einum stað og svo kom næsti og sótti mig,“ segir Obi Mikel í viðtali við The Sun. „Þegar ég hitti José sagði hann mér að Abramovich vildi ólmur fá mig. Hann lofaði að nota mig en það var á þessum tíma sem ég spurði mig hvort ég hefði tekið rétta ákvörðun.“ Obi Mikel fékk 70.000 pund í skjalatösku frá ónefndum umboðsmanni fyrir það að skrifa undir við Chelsea sem hann svo gerði við litla hrifningu Sir Alex Ferguson. „Ég sá hvað hann var reiður en ég var með Barcelona klárt líka ef þetta hefði ekki gengið í gegn hjá Chelsea. Mér fannst ég bara verða að skrifa undir hjá Chelsea því það sá um mig,“ segir John Obi Mikel. Nígeríumaðurinn vann ensku deildina tvívegis, Meistaradeildina, fjóra bikara og deildabikarinn tvívegis á tíma sínum á Stamford Bridge.
Enski boltinn Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira