Innlent

Geirsgata verður áfram opin um hjáleið

Atli Ísleifsson skrifar
Geirsgata í nýrri legu milli bygginga sem nú eru í uppbyggingu.
Geirsgata í nýrri legu milli bygginga sem nú eru í uppbyggingu. Reykjavíkurborg
Samgöngustjóri Reykjavíkurborgar segir að borgin muni leitast við að halda götunni opinni um hjáleið á meðan framkvæmdir við Hafnartorg og Austurhöfn standa yfir.

Í frétt á vef Reykjavíkurborgar segir að framkvæmdir við Hafnartorg hafi staðið yfir um nokkurt skeið og sökum þeirra liggur Geirsgata nú um hjáleið innan lóðar Austurhafnar ehf. Þar hefjast brátt framkvæmdir við íbúðir við Austurhöfn.

„Hluti þessara framkvæmda ganga út á að gera bílakjallara, en bílakjallarinn við Hörpu og bílakjallarinn við Hafnartorg verða samtengdir. Ofan á hluta bílakjallara kemur ný Geirsgata.

Reykjavíkurborg
Stefnt var að því að færa hjáleiðina þann 15. apríl sl. en þar sem töf varð á upphafi framkvæmda síðasta haust náðist það ekki. Áfram verður því notast við hjáleiðina.“

Samgöngustjórinn Þorsteinn Rúnar Hermannsson segir að um sé að ræða mjög flókna gatnaframkvæmd þar sem margir þættir þurfi að ganga upp og því eðlilegt að slíkt komi upp.

„Við munum gera okkar besta til að halda götunni opinni þar til framkvæmdum lýkur og við munum eiga samtal við verktaka á svæðinu um hvernig við leysum það. Komi til einhverra lokana verða þær auglýstar með góðum fyrirvara og lokunartími verður lágmarkaður,“ segir Þorsteinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×