Úrræði umboðsmanns skuldara Ásta S. Helgadóttir skrifar 14. mars 2017 07:00 Umboðsmaður skuldara hvetur einstaklinga í greiðsluerfiðleikum til að fá endurgjaldslausa aðstoð embættisins við úrlausn á fjárhagsvanda. Embættið býður upp á almenna ráðgjöf, úrræði greiðsluaðlögunar og fjárhagsaðstoð til greiðslu tryggingar fyrir kostnaði vegna gjaldþrotaskipta. Þá er jafnframt hægt að senda embættinu erindi sem snerta málefni skuldara. Embættið veitir hins vegar ekki almenna lögfræðiráðgjöf. Með umsókn um ráðgjöf geta einstaklingar fengið heildaryfirsýn yfir fjárhagsstöðu með tilliti til eigna, skuldbindinga og greiðslugetu. Ráðgjafi leitar leiða til lausna á fjárhagserfiðleikum, t.d. með skilmálabreytingum, frystingu lána eða samningum um greiðslu vanskila. Ef vægari lausnir duga ekki er lagt mat á hvort úrræði greiðsluaðlögunar geti leyst fjárhagserfiðleika viðkomandi. Úrræði greiðsluaðlögunar er opið öllum þeim sem uppfylla ákveðin lagaleg skilyrði og berast nú að meðaltali um 28 umsóknir í mánuði hverjum. Meðal grunnskilyrða er að einstaklingur sé eða verði um fyrirsjáanlega framtíð ófær um að standa í fullum skilum með fjárskuldbindingar sínar. Í greiðsluaðlögun einstaklinga er leitast við að ná frjálsum samningum við kröfuhafa með það að markmiði að koma á jafnvægi milli skulda og greiðslugetu. Samningar um greiðsluaðlögun geta m.a. kveðið á um gjaldfrest, lægri afborganir og eftirgjöf skulda. Í dag hafa tekið gildi um 3.100 samningar um greiðsluaðlögun. Fjárhagsaðstoð vegna skiptatryggingar er úrræði fyrir þá einstaklinga sem hyggjast leita gjaldþrotaskipta en hafa ekki tök á að standa undir tryggingu fyrir skiptakostnaði sem nemur 250.000 kr. Ákveðin skilyrði eru fyrir veitingu fjárhagsaðstoðar, m.a. að umsækjandi hafi reynt önnur greiðsluvandaúrræði eða umboðsmaður skuldara meti það svo að önnur úrræði séu ekki til þess fallin að leysa greiðsluvanda umsækjanda. Umboðsmaður skuldara hvetur þá sem vilja kynna sér úrræðin að lesa sér til um þau á heimasíðu embættisins, www.ums.is. Á heimasíðunni er jafnframt hægt að leggja fram rafræna umsókn, annað hvort með íslykli eða rafrænum skilríkjum. Þá eru einstaklingar hvattir til að nýta símatíma embættisins á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 13-14, í síma 512-6600. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Miðflokkurinn: fjarverandi í landi tækifæranna Lilja Hrund Lúðvíksdóttir Skoðun Riddarar kærleikans Halla Tómasdóttir Skoðun Það sem „gleymist“ að segja Sigmar Guðmundsson Skoðun Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium Skoðun Tvö útspil Pírata fyrir notendur heilbrigðiskerfisins Skoðun Þegar Joe Camel varð jafngóður vinur barnanna og Mikki mús Eyrún Magnúsdóttir Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Hvar er fótspor stjórnvalda gegn vinnumansali? Þorbjörrg Sigríður Gunnlaugsdóttir Skoðun Við stöndum saman með réttindum táknmálsins! Mordekaí Elí Esrason Skoðun Um mennsku og samfélag Bolli Pétur Bollason Skoðun Skoðun Skoðun Valdatafl Skák og Mát! Lárus Guðmundsson skrifar Skoðun FO: Hvernig getur þú skipt sköpum fyrir konur í Súdan? Áslaug Eva Björnsdóttir skrifar Skoðun Tvö útspil Pírata fyrir notendur heilbrigðiskerfisins skrifar Skoðun Miðflokkurinn: fjarverandi í landi tækifæranna Lilja Hrund Lúðvíksdóttir skrifar Skoðun Við stöndum saman með réttindum táknmálsins! Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Það sem „gleymist“ að segja Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvar er fótspor stjórnvalda gegn vinnumansali? Þorbjörrg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar Joe Camel varð jafngóður vinur barnanna og Mikki mús Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Riddarar kærleikans Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Um mennsku og samfélag Bolli Pétur Bollason skrifar Skoðun Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium skrifar Skoðun Sársaukafull vaxtarmörk Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Tölum íslensku Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er Miðflokkurinn fyrir ungt fólk? Anton Sveinn McKee skrifar Skoðun Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér Kári Helgason skrifar Skoðun Um orkuskort, auðlindir og endurvinnslu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Er padda í vaskinum? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar Skoðun Rannsökum og ræðum menntakerfið Kolbrún Þ. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæra sig ekki um evruna Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til fjölmiðla Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Horfið á möguleikana í samfélagslegri ábyrgð Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Að kjarna orku þjóðar Ísak Einar Rúnarsson skrifar Skoðun Orðræða seðlabankastjóra veldur mér áhyggjum Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Flogið á milli landa á endurnýjanlegri orku: Draumsýn eða Raunveruleiki? Gnýr Guðmundsson skrifar Skoðun Það er verið að hafa okkur að fíflum. Davíð Bergmann skrifar Skoðun Útboð á Fjarðarheiðargöngum Hildur Þórisdóttir skrifar Skoðun Hvert á að fara með íslenskt þjóðfélag? Reynir Böðvarsson skrifar Sjá meira
Umboðsmaður skuldara hvetur einstaklinga í greiðsluerfiðleikum til að fá endurgjaldslausa aðstoð embættisins við úrlausn á fjárhagsvanda. Embættið býður upp á almenna ráðgjöf, úrræði greiðsluaðlögunar og fjárhagsaðstoð til greiðslu tryggingar fyrir kostnaði vegna gjaldþrotaskipta. Þá er jafnframt hægt að senda embættinu erindi sem snerta málefni skuldara. Embættið veitir hins vegar ekki almenna lögfræðiráðgjöf. Með umsókn um ráðgjöf geta einstaklingar fengið heildaryfirsýn yfir fjárhagsstöðu með tilliti til eigna, skuldbindinga og greiðslugetu. Ráðgjafi leitar leiða til lausna á fjárhagserfiðleikum, t.d. með skilmálabreytingum, frystingu lána eða samningum um greiðslu vanskila. Ef vægari lausnir duga ekki er lagt mat á hvort úrræði greiðsluaðlögunar geti leyst fjárhagserfiðleika viðkomandi. Úrræði greiðsluaðlögunar er opið öllum þeim sem uppfylla ákveðin lagaleg skilyrði og berast nú að meðaltali um 28 umsóknir í mánuði hverjum. Meðal grunnskilyrða er að einstaklingur sé eða verði um fyrirsjáanlega framtíð ófær um að standa í fullum skilum með fjárskuldbindingar sínar. Í greiðsluaðlögun einstaklinga er leitast við að ná frjálsum samningum við kröfuhafa með það að markmiði að koma á jafnvægi milli skulda og greiðslugetu. Samningar um greiðsluaðlögun geta m.a. kveðið á um gjaldfrest, lægri afborganir og eftirgjöf skulda. Í dag hafa tekið gildi um 3.100 samningar um greiðsluaðlögun. Fjárhagsaðstoð vegna skiptatryggingar er úrræði fyrir þá einstaklinga sem hyggjast leita gjaldþrotaskipta en hafa ekki tök á að standa undir tryggingu fyrir skiptakostnaði sem nemur 250.000 kr. Ákveðin skilyrði eru fyrir veitingu fjárhagsaðstoðar, m.a. að umsækjandi hafi reynt önnur greiðsluvandaúrræði eða umboðsmaður skuldara meti það svo að önnur úrræði séu ekki til þess fallin að leysa greiðsluvanda umsækjanda. Umboðsmaður skuldara hvetur þá sem vilja kynna sér úrræðin að lesa sér til um þau á heimasíðu embættisins, www.ums.is. Á heimasíðunni er jafnframt hægt að leggja fram rafræna umsókn, annað hvort með íslykli eða rafrænum skilríkjum. Þá eru einstaklingar hvattir til að nýta símatíma embættisins á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 13-14, í síma 512-6600. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar
Skoðun Flogið á milli landa á endurnýjanlegri orku: Draumsýn eða Raunveruleiki? Gnýr Guðmundsson skrifar