Bein útsending: Hver er fyndnasti háskólaneminn? Stefán Árni Pálsson skrifar 28. mars 2017 20:00 Frá fyrri keppni.
Í kvöld fer fram úrslitakvöld uppistandskeppninnar Fyndnasti Háskólaneminn í Stúdentakjallaranum þar sem útkljáð verður hvaða nemandi Háskólans er færastur í að kitla hláturtaugar samnemanda sinna. Þetta er þriðja árið í röð sem keppnin fer fram en hún er haldin af Stúdentaráði Háskóla Íslands í góðu samstarfi við Landsbankann. Sex keppendur, sem listaðir eru hér að neðan, keppa til úrslita í kvöld en í dómnefnd verða engir aðrir en hinir sívinsælu uppistandsbræður þeir Björn Bragi, Dóri DNA, Jóhann Alfreð, Ari Eldjárn og Bergur Ebbi sem saman standa að Mið-Ísland hópnum en keppnin í ár er sérstök að því leyti að sigurvegari kvöldsins mun eiga möguleika á að troða upp með þeim á Mið-Ísland á sýningu þeirra í vor. Hópurinn verður þar með sérstakir gestgjafar kvöldsins og mun einn úr þeirra röðum taka að sér kynnahlutverkið. Það er til mikils að vinna en auk þess að fá möguleikann á frægð og frama í uppistandsbransanum mun sigurvegari keppninnar ganga heim með 100.000 kr í boði Landsbankans ásamt þeim heiðri að skarta titlinum Fyndnasti háskólaneminn 2017.Keppnin hefst klukkan 20:30. Keppendur í úrslitakeppni í þeirri röð sem þau keppa: Árni Birgir Guðmundsson Engilbert Aron Kristjánsson Anna Kristín Jensdóttir Hrafnkell Ásgeirsson Andrea Arnarsdóttir Kevin Dillman
Mest lesið Maggie Smith er látin Lífið Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Lífið Íslensk börn skorti meiri aga Lífið Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Lífið Í hnapphelduna með krókódílamanninum Lífið Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Lífið Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Lífið Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Lífið Fleiri fréttir Þriðja barnið á leiðinni Eva flutt inn í verðlaunahús Kára Kallaður hinn íslenski Forrest Gump af stóra bróður Heldur ekki vatni yfir konunni sinni Íris Ósk selur tryllt hönnunarhús Maggie Smith er látin Gaf eiginmanninum nektarmynd á stórafmælinu Í hnapphelduna með krókódílamanninum Kolbrún ber laxerolíu á andlitið Íslensk börn skorti meiri aga Ætlar í blómabað á Balí með manninum sínum Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Ekkert mál að hlaupa alveg staurblindur Sjá meira