Giroud bjargaði stigi fyrir Arsenal | Sjáðu mörkin Magnús Ellert Bjarnason skrifar 10. desember 2017 14:15 Southampton og Arsenal gerðu 1-1 jafntefli á St. Mary's leikvanginum í ensku úrvalsdeildinini í dag. Leikurinn var vart hafinn þegar að enski sóknarmaðurinn Charlie Austin kom heimamönnum í Southampton yfir með snyrtilegri afgreiðslu eftir sendingu Dusan Tadic. Vörn Arsenal sofandi og kom Petr Cech engum vörnum við. Southampton var betri aðilinn í fyrri hálfleik og gekk Arsenal illa að skapa sér opin færi. Staðan 1-0 í hálfleik, Southampton í vil. Það sama var uppá teningnum í síðari hálfleik og stefndi allt í óvæntan heimasigur Southampton. Franski landsliðsmaðurinn Oliver Giroud var hins vegar á öðru máli. Bjargaði hann stigi fyrir Arsenal með laglegum skalla á 88. mínútu eftir að hafa komið inná sem varamaður á 72. mínútu. Niðurstaðan því 1-1 jafntefli og gengu heimamenn í Southampton niðurlútir af velli. Enski boltinn