Jóhann Berg lagði upp er Burnley fór upp í 6. sætið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. nóvember 2017 21:30 Jóhann Berg Guðmundsson. Vísir/Getty Jóhann Berg Guðmundsson gaf sína fjórðu stoðsendingu í ensku úrvalsdeildinni í vetur þegar Burnley vann 1-2 sigur á Bournemouth á útivelli í kvöld. Með sigrinum komst Burnley upp í 6. sæti deildarinnar. Bournemouth er í 15. sætinu. Chris Wood kom Burnley yfir á 37. mínútu. Á 65. mínútu skoraði Robbie Brady svo annað mark liðsins eftir sendingu frá Jóhanni Berg Guðmundssyni. Joshua King minnkaði muninn á 79. mínútu en nær komst Bournemouth ekki. Lokatölur 1-2, Burnley í vil. Enski boltinn