Sterling hetjan þriðja leikinn í röð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. nóvember 2017 22:00 Raheem Sterling fagnar eftir að hafa skorað sigurmark City. vísir/getty Þriðja leikinn í röð var Raheem Sterling hetja Manchester City. Enski landsliðsmaðurinn skoraði sigurmark City gegn Southampton í kvöld þegar sex mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Lokatölur 2-1, City í vil. Sterling skoraði einnig sigurmark á elleftu stundu gegn Feyenoord í Meistaradeildinni og Huddersfield í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Hann hefur alls skorað fjögur sigurmörk á 84. mínútu eða síðar á tímabilinu.4 - Raheem Sterling has now scored the winning goal in the 84th minute or later in four different competitive matches for Manchester City this season, including the last three games in a row. Lifesaver. pic.twitter.com/5D23DhsYxk— OptaJoe (@OptaJoe) November 29, 2017 Kevin De Bruyne kom City yfir á 47. mínútu en Oriol Romeu jafnaði metin þegar stundarfjórðungur var til leiksloka. Það mark virtist ætla að tryggja Southampton stig en Sterling var á öðru máli eins og áður sagði. City er áfram með átta stiga forskot á toppi deildarinnar. Southampton er í 11. sætinu. Enski boltinn