Rooney með eftirminnilega þrennu í stórsigri á Hömrunum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. nóvember 2017 22:00 Wayne Rooney skoraði þrjú fyrstu mörk Everton. Vísir/Getty
Wayne Rooney sýndi gamla takta og skoraði þrennu þegar Everton vann stórsigur á West Ham, 4-0, á Goodison Park í kvöld. Þetta var síðasti leikur Everton undir stjórn Davids Unsworth. Nýi knattspyrnustjórinn, Sam Allardyce, fylgist með úr stúkunni. Everton var 2-0 yfir í hálfleik með tveimur mörkum frá Rooney. West Ham byrjaði seinni hálfleikinn betur og fékk gullið tækifæri til að minnka muninn á 59. mínútu. Jordan Pickford kom í veg fyrir það með því að verja vítaspyrnu Manuels Lanzini. Sjö mínútum síðar skoraði Rooney stórglæsilegt mark með skoti langt fyrir aftan miðju. Mögnuð tilþrif hjá Rooney sem hefur skorað sjö mörk í 12 deildarleikjum á tímabilinu. Ashley Williams átti svo síðasta orðið þegar hann skallaði hornspyrnu Gylfa Þórs Sigurðssonar í netið á 78. mínútu. Lokatölur 4-0, Everton í vil.
Enski boltinn Tengdar fréttir Allardyce ráðinn stjóri Gylfa og Shakespeare aðstoðar hann Everton hefur ráðið Sam Allardyce sem knattspyrnustjóra félagsins og David Unsworth tekur aftur við 23 ára liði félagsins. 29. nóvember 2017 13:30
Allardyce ráðinn stjóri Gylfa og Shakespeare aðstoðar hann Everton hefur ráðið Sam Allardyce sem knattspyrnustjóra félagsins og David Unsworth tekur aftur við 23 ára liði félagsins. 29. nóvember 2017 13:30