Lífið

Vandræðalegasti hrekkur ársins: Mætti hálfnakinn að sækja unglinginn í skólann

Stefán Árni Pálsson skrifar
Óborganlegt.
Óborganlegt.
Það kannast líklega flestir við það að skammast sín fyrir foreldra sína og hafa sennilega upplifað vandræðaleg augnablik á einhverjum kafla í lífi sínu.

Bandaríkjamaðurinn Justin Beadles gekk aftur á móti mun lengra enn langflestir foreldrar á dögunum. Hann á son sem ber nafnið Jack Beadles og er 15 ára.

Þegar komið var að síðasta skóladeginum hjá Jack mætti Justin í skólann og sótti son sinn á sundskýlunni, með sundhettu og nokkra verðlaunagripi um hálsinn.

Þetta er sennilega það vandræðalegasta sem hægt er að ímynda sér fyrir unglingsdreng, en fréttastofurnar vestanhafs keppast nú við það að fjalla um atvikið.

News9.com - Oklahoma City, OK - News, Weather, Video and Sports |





Fleiri fréttir

Sjá meira


×