Skellur á móti Norðmönnum og strákarnir enda í 12. sæti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. júlí 2017 14:50 Það gekk alltof lítið upp hjá strákunum í síðustu þremur leikjum. Mynd/Instagram-síða HSÍ
Íslenska 21 árs landsliðið tapaði í dag fyrir Noregi í leiknum um 11. sætið á HM 21 árs landsliða í Alsír. Þetta var þriðja tap íslensku strákanna í röð á mótinu. Norðmenn höfðu mikla yfirburði í leiknum og unnu á endanum sex marka sigur, 33-27, eftir að hafa komist mest ellefu mörkum yfir. Íslenska liðið vann fjóra fyrstu leikina á mótinu en síðan fylgdu þrjú töp, fyrst 29-26 á móti Króatíu í lokaleik riðilsins, þá 28-27 á móti Túnis í 16 liða úrslitunum og svo á móti Noregi í dag. Svíar unnu á sama tíma 33-21 sigur á Færeyjum í leiknum um 15. sætið á mótinu. Lítið var um varnarleik og markvörslu í upphafi leiks, hjá báðum liðum. Eftir 10 mínútur var staðan 7-7. Þá náðu Norðmenn 4-0 kafla á næstu fimm mínútum og breyttu stöðunni í 7-11. Íslensku þjálfararnir tóku leikhlé og Einar kom í markið fyrir Viktor. Einar byrjaði á að verja og skora mark þvert yfir völlinn sem virtist ætla að kveikja aðeins í strákunum okkar. Norðmenn bættu hinsvegar aftur í og voru komnir fimm mörkum yfir á 23. mínútu, 10-15. Þá tók Ísland aftur leikhlé sem virtist bara hafa þveröfug áhrif og Norðmenn bættu áfram í. Staðan í hálfleik 12-20 eftir vondan fyrri hálfleik. Norðmenn náðu mest ellefu marka forustu í seinni hálfleiknum og Ísland náði aldrei að minnka forskot Norðmanna í minna en sex mörk. Eftir 40 mínútna leik var staðan 17-25 fyrir Norðmenn og staðan var 20-28 eftir 50 mínútur. Þegar upp var staðið munaði sex mörkum á liðunum og sanngjarn 27-33 sigur Norðmanna staðreynd. Ísland hefur nú lokið leik á heimsmeistaramótinu og er tólfta sæti staðreynd. Þetta eru mikil vonbrigði því íslenska liðið ætlaði sér stóra hluti á mótinu.
Handbolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Sjá meira