Mourinho: Michael Oliver bjargaði tímabilinu fyrir okkur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. maí 2017 17:15 Michael Oliver sýnir Ander Herrera rauða spjaldið í leik Manchester United og Chelsea í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar. vísir/getty
José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að Mike Oliver hafi bjargað tímabilinu hjá United með því að reka Ander Herrera út af í tapinu fyrir Chelsea í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í mars. Mourinho hefur verið afar tíðrætt um það mikla leikjaálag sem er á United þessar vikurnar og kvartað sáran. „Þetta er brjálæði. Ég vil bara þakka Michael Oliver fyrir að við erum úr leik í bikarkeppninni,“ sagði Mourinho. „Ef við hefðum komist í undanúrslitin veit ég ekki hvenær við hefðum spilað þann leik. Ég hef aldrei lent í öðru eins og til að bæta gráu ofan á svart höfum við glímt við mikil meiðsli, mörg hver alvarleg. Ég hef alltaf færri og færri leikmenn. Þetta er mjög erfitt, virkilega erfitt.“ United á þrjá leiki eftir á tímabilinu. Liðið sækir Southampton heim í ensku úrvalsdeildinni á morgun og fær svo Crystal Palace í heimsókn í lokaumferðinni á sunnudaginn. Á miðvikudaginn í næstu viku mætir United svo Ajax í úrslitaleik Evrópudeildarinnar. Sigur í honum gefur United sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili.
Enski boltinn Tengdar fréttir Fimm milljarðar króna undir hjá leikmönnum Man. Utd Það er mikið undir hjá Man. Utd er liðið spilar gegn Ajax í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í næstu viku. 16. maí 2017 14:00 Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Sjá meira
Fimm milljarðar króna undir hjá leikmönnum Man. Utd Það er mikið undir hjá Man. Utd er liðið spilar gegn Ajax í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í næstu viku. 16. maí 2017 14:00