Lést eftir að hafa innbyrt of mikið prótein Stefán Ó. Jónsson skrifar 16. ágúst 2017 21:36 Meegan Hefford lagði stund á líkamsrækt af kappi. Instagram
Ung áströlsk kona lést eftir að hafa innbyrt of mikið prótein í aðdraganda vaxtarræktarkeppni þar í landi. Konan, hin 25 ára gamla Meegan Hefford, fannst meðvitundarlaus á heimili sínu í vesturhluta landsins þann 19. júní síðastliðinn. Hún lést á sjúkrahúsi nokkrum dögum síðar. Eftir andlát hennar kom í ljós að Hefford, sem er móðir 7 ára stúlku og 5 ára drengs, þjáðist af sjaldgæfum erfðagalla sem kemur í veg fyrir að líkaminn vinni almennilega úr því próteini sem innbyrt er. Galli í þvagefnishring konunnar olli því að ensímið sem alla jafna brýtur niður próteinið í líkmanum virkaði ekki sem skyldi og varð til þess að ammóníak safnaðist upp í líkama hennar. Ammóníakið kann svo að leita upp í heilann þar sem það getur valdið óafturkræfum skaða, dái eða jafnvel dauða eins og í tilfelli Hefford.Í samtali við CNN segir talsmaður samtaka sem berjast fyrir vitundarvakningu um þvagefnishringinn að flestir sem þjáist af erfðagallanum nái að vinna úr einkennum hans án þess að þurfa að hafa miklar áhyggjur. Þó kunni utanaðkomandi breytur að magna upp áhrifin, svo sem smitsjúkdómar, stress eða próteinríkt mataræði. „Það var ómögulegt að vita að hún væri með gallann því alla jafna er ekki prófað fyrir honum,“ segir móðir Hefford. „Henni fór að líða illa og svo féll hún til jarðar.“ Hún kennir próteindrykkjum um andlát dóttur sinnar. A post shared by • MEEGAN HEFFORD • (@meeganheff) on May 22, 2017 at 6:32am PDT
Mest lesið Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Innlent Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Erlent Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Innlent Samherjaskipstjórinn segir málinu ekki lokið Innlent Líklega verði flett ofan af fleirum í rannsókn á brotum Diddy Innlent „Þetta má aldrei gerast aftur“ Innlent Sextán ára dómur fyrir manndráp í Drangahrauni stendur Innlent Um 100 þúsund fjár slátrað á Selfossi Innlent Fleiri fréttir Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Þingmaður sagði fólki frá Haítí að „drulla sér“ frá Bandaríkjunum Lögðu hald á síma borgarstjórans Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Nákvæmasta kortið af Vetrarbrautinni til þessa Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Segir tortímingu eða uppgjöf Hezbollah einu lausnina Alríkisákærur gefnar út á hendur borgarstjóra New York Hótar að beita kjarnorkuvopnum gegn árás með hefðbundnum vopnum Vinna að þriggja vikna vopnahléi á milli Ísrael og Hezbollah Selenskí varar við „kjarnorku hörmung“ Loftárásum ætlað að undirbúa mögulega innrás „Virkið“ Vuhledar að falli komið Skutu skotflaug í Kyrrhafið í fyrsta sinn í rúm fjörutíu ár Manngerð hlýnun gerði flóðin í Evrópu tvöfalt líklegri en ella Unnu spellvirki á finnska þinghúsinu til að mótmæla móvinnslu Hútar vilja háþróaðar stýriflaugar frá Rússum Combs sakaður um enn eina kynferðisárásina Infowars á uppboð í nóvember upp í skuld við syrgjandi fjölskyldur Starfsmenn Boeing sagðir hafna tilboði um 30 prósent launahækkun Sakar Hezbollah um að leiða Líbanon „að hyldýpinu“ Sonur tilræðismannsins handtekinn vegna barnaníðsefnis Með þrjú flugmóðurskip á sjó í fyrsta sinn Enn einn leiðtogi Hezbollah felldur Þreföldun á endurnýjanlegri orkuframleiðslu innan seilingar Skutu viðvörunarskotum að norsku skipi í norskri lögsögu Demókratar uggandi yfir niðurstöðum skoðanakannana „Sterk Úkraína mun neyða Pútín að samningaborðinu“ Halda árásum áfram og beina sjónum að eldflaugastæðum Hezbollah Sjá meira