Stúlka sem rænt var af spítala fyrir 18 árum fannst á lífi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. janúar 2017 18:57 Mobley þegar hún var nýfædd og konan sem handtekin var í tengslum við barnsránið. mynd/lögreglan í jacksonville
Stúlka sem rænt var af spítala í Flórída í Bandaríkjunum í júlí árið 1998 fannst á lífi í Suður-Karólínu eftir ábendingu frá almenningi. Stúlkan, Kamiyah Mobley, hélt að Gloria Williams væri móðir sín en lögreglan handtók Williams þar sem talið er að hún tengist barnsráninu. Mobley hét öðru nafni en fjölskylda hennar hefur verið látin vita af því að hún sé fundin. Að því er fram kemur í frétt BBC er Mobley við góða heilsu og virðist vera ósköp venjuleg 18 ára stúlka. Hún var aðeins átta tíma gömul þegar kona, sem þóttist vera starfsmaður á spítalanum, tók hana. Konan sagði móður Mobley að stúlkan væri með hita og þyrfti því á læknisskoðun að halda. Hún hvarf hins vegar með stúlkuna og sást ekki aftur á spítalanum. Málið vakti mikla athygli í Bandaríkjunum á sínum tíma þar sem móðirin reyndi að finna nýfædda dóttur sína. Lögreglustjórinn í Jacksonville sem fer með málið segir það undir Mobley komið hvernig og hvenær hún mun hafa samband við fjölskyldu sína. „Hún er núna fullorðin. Hana grunaði jafnvel að eitthvað hefði gerst en ímyndið ykkur að reyna að skilja þetta allt. Henni var rænt sem ungabarni og hún þarf tíma til að meðtaka þetta allt. Við viljum virða einkalíf hennar og óskum eftir því að þið gerið slíkt hið sama,“ sagði lögreglustjórinn við fjölmiðla.
Mest lesið Vegfarandinn er látinn Innlent „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Innlent „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Innlent Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Erlent Maður stunginn í brjóstkassann í nótt Innlent Foreldrar margoft kvartað undan hættulegum gatnamótum Innlent Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Innlent Skjálftar að stærð 3,6 og 3,3 Innlent Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn Innlent Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Erlent Fleiri fréttir Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Ákærður fyrir mútuþægni og fjársvik Sjá meira