Bjó í meira en ár í milljón dollara villu með rotnandi lík systur sinnar á eldhúsgólfinu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. janúar 2017 20:50 Húsið sem systurnar bjuggu í. mynd/brookline assesor's office
Lík 67 ára gamallar konu fannst í seinasta mánuði í milljón dollara villu í bænum Brookline í Bandaríkjunum, skammt frá Boston. Talið er að líkið hafi verið í húsinu í meira en ár en það fannst á eldhúsgólfinu. Konan bjó í villunni með systur sinni sem hafði þá búið þar með líkinu allt frá því að konan lést.Samkvæmt umfjöllun Washington Post um málið er ekki talið að neitt saknæmt hafi átt sér stað en systurnar, Lynda Waldman, 74 ára, og Hope Wheaton, héldu sig mikið út af fyrir sig. Þær umgengust þó nágranna og ættingja en fyrir um það bil einu og hálfu ári hætti að sjást mikið til þeirra og þá sérstaklega Wheaton, sem hefur að öllum líkindum látist sumarið 2015. „Við vorum alltaf að spyrja hvar hún væri en hún svaraði ekki,“ er haft eftir Harriet Allen, nágranna og vinkonu systranna. Þá hafði lögreglan komið oftar en einu sinni til að athuga með systurnar eftir ábendingar frá nágrönnum en Waldman hafði alltaf afþakkað alla aðstoð. Það var því ekki fyrr en í seinasta mánuði sem í ljós kom að önnur systirin væri látin. Ættingi systranna hafði þá komið til að athuga hvort ekki væri í lagi með lagnirnar í húsinu vegna mikils kulda. Þegar hann kom inn í eldhúsið í húsinu sá hann rotnandi lík Wheaton liggja á gólfinu. Eins og áður segir er talið að hún hafi látist sumarið 2015 og hefur Waldman, systir hennar, að öllum líkindum búið í húsinu með líkinu allan þann tíma. Hún sagði lögreglunni síðar að Wheaton hefði stundum orðið veik, dottið og ekki getað staðið upp. Hún hefði þá gefið henni vatn og frostpinna þar til henni leið betur. Í þetta skiptið hefði henni hins vegar ekki liðið neitt betur og þá vissi Waldman ekki hvað hún átti að gera.
Mest lesið Vegfarandinn er látinn Innlent „Dapurleg framkoma“ fólks á vettvangi banaslyss umhugsunarefni Innlent „Þetta er eiginlega bankahrun karlmennskunnar“ Innlent Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Erlent Maður stunginn í brjóstkassann í nótt Innlent Foreldrar margoft kvartað undan hættulegum gatnamótum Innlent Þoturnar sem flytja Íslendinga yfir Atlantshafið næstu áratugi Innlent Skjálftar að stærð 3,6 og 3,3 Innlent Arnar Þór stofnar Lýðræðisflokkinn Innlent Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Erlent Fleiri fréttir Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Netanyahu hafnar tillögum um vopnahlé milli Ísrael og Hezbollah Vísar á bug tillögum um frið í skiptum fyrir úkraínskt land Sjá meira