Liverpool ekki í neinum vandræðum með nýliðana Arnar Geir Halldórsson skrifar 28. október 2017 15:45 Daniel Sturridge kom Liverpool á bragðið í dag. vísir/getty Liverpool átti ekki í teljandi vandræðum með nýliða Huddersfield þegar liðin mættust á Anfield í dag. Mo Salah fékk besta færi fyrri hálfleiks þegar hann tók vítaspyrnu en Egyptinn lét Jonas Lössl verja frá sér og staðan því markalaus í leikhléi. Síðari hálfleikur var aðeins fjögurra mínútna gamall þegar Daniel Sturridge kom Liverpool í forystu eftir vandræðagang í vörn gestanna. Skömmu síðar tvöfaldaði Roberto Firmino forystuna þegar hann skallaði hornspyrnu James Milner í netið. Hollenski miðjumaðurinn Giorginio Wijnaldum gerði svo endanlega út um vonir gestanna þegar hann dúndraði boltanum í netið eftir undirbúning Mo Salah. Lokatölur 3-0 fyrir Liverpool sem eru nú komnir í sjötta sæti deildarinnar með sextán stig eftir tíu leiki. Enski boltinn