Erlent

Rússneski geimfarinn Grechko látinn

Atli Ísleifsson skrifar
Georgy Grechko árið 2011.
Georgy Grechko árið 2011. Wikipedia commons
Rússneski geimfarinn Georgy Grechko er látinn, 85 ára að aldri. Rússneska geimferðastofnunin Roscosmos staðfesti þetta fyrr í dag.

Grechko fór þrívegis út í geim á árunum 1975 til 1985 og varði þar samtals 134 dögum.

Lengsta ferð hans var rúmlega þrír mánuðir þegar hann dvaldi í geimstöðinni Salyut-6 á árinum 1977 til 1978. Grechko starfaði síðar sem kennari fyrir aðra verðandi geimfara.

Í frétt AP segir að Roscosmos hafi ekki upplýsingar um orsök andláts Grechko.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×