Enn og aftur klárar Arsenal Burnley í uppbótartíma | Sjáðu markið

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Burnley fékk Arsenal í heimsókn á Turf Moor í ensku úrvalsdeildinni í dag en liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn í sjötta og sjöunda sæti deildarinnar.

Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley og hann komst nálægt því að skora strax á fimmtándu mínútu en Petr Cech náði að verja boltann í stöngina og út.

Hart var barist og bæði lið áttu ágætis spretti án þess þó að skapa sér mörg góð færi. Stefndi allt í markalaust jafntefli þegar Arsenal fékk vítaspyrnu í uppbótartíma.

Alexis Sanchez fór á vítapunktinn, skoraði og trygði Arsenal þrjú dýrmæt stig. Grátlegt fyrir Burnley en þetta er í þriðja skiptið í röð sem liðið tapar fyrir Skyttunum í uppbótartíma.

 


Tengdar fréttir

Dyche hyggur ekki á hefndir

Sean Dyche, stjóri Burnley, segir lið sitt ekki vera með hugann við síðustu viðureignir liðsins gegn Arsenal þegar liðin mætast í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira