Fótbolti

Íslendingaliðin áfram

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sverrir og félagar eru komnir áfram.
Sverrir og félagar eru komnir áfram. vísir/getty
Íslendingaliðin Krasnodar og Rostov eru bæði komin áfram í rússnesku bikarkeppninni en bæði eru þau komin í átta liða úrslitin.

Jón Guðni Fjóluson var í vörn Krasnodar sem hafði betur gegn Krylya Sovetov Samara eftir framlengdan leik, 2-1. Sigurmarkið kom níu mínútum fyrir leikslok.

Viðar Örn Kjartansson og Sverrir Ingi Ingason voru í byrjunarliði Rostov sem vann 3-1 sigur á Zenit St. Petersburg en Zenit er á toppnum í úrvalsdeildinni í Rússlandi.

Björn Bergmann Sigurðarson kom inn á sem varamaður síðustu fjórar mínúturnar í leiknum en Ragnar Sigurðsson var hvíldur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×