Dýrmæt stig í súginn hjá Southampton eftir jöfnunarmark í uppbótartíma Anton Ingi Leifsson skrifar 5. maí 2018 18:30 Grátlegt fyrir Southampton. vísir/getty Everton og Southampton gerðu 1-1 jafntefli í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Jöfnunarmark Everton kom í uppbótartíma. Southampton þurftu nauðsynlega á þremur stigum að halda en liðið er í mikilli fallbaráttu. Það leit vel út en Nathan Redmond kom Southampton yfir á 56. mínútu. Maya Yoshida fékk að líta sitt annað gula spjald á 85. mínútu og gestirnir í Southampton léku einum færri síðustu mínúturnar. Stigin þrjú virtust vera í húsi en seint í uppbótartímanum jafnaði Tom Davies metin með skoti sem hafði viðkomu í varnarmanni og inn. Lokatölur 1-1. Dýrmæt stig í súginn hjá Southampto sem náði þó að komast upp úr fallsæti með þessu eina stigi en liðið er með jafn mörg stig og Swansea sem er í átjánda sætinu. Southampton er með markahlutfall en Swansea. Enski boltinn