Liverpool vaknaði í seinni hálfleiknum Dagur Lárusson skrifar 24. nóvember 2018 17:00 Firmino fagnar þriðja marki Liveprool vísir/getty Eftir heldur hægan fyrri hálfleik vaknaði sóknarleikur Liverpool til lífsins í seinni hálfleiknum og skoruðu þeir Salah, Alexander-Arnold og Firmino sitthvort markið í 0-3 sigri. Besta færi fyrri hálfleikins átt eflaust Egyptinn Mohamed Salah en þá tók Shaqiri hornspyrnu sem endaði beint á kollinum á Salah sem var óvaldaður í teignu en Ben Forster í markinu náði að verja á ögurstundu. Í seinni hálfleiknum kom meira líf í sóknarleik Liverpool og varð í raun aðeins tímaspursmál hvenær þeir næðu forystunni. Það gerðist síðan á 67. mínútu þegar Salah skoraði eftir undirbúning Robertson. Nokkrum mínútum seinna var brotið á Firmino rétt fyrir utan teig og var dæmd aukaspyrna sem að Alexander-Arnold tók og skoraði glæsilega úr framhjá Forster og staðan orðin 2-0. Það var síðan Roberto Firmino sem batt endahnútinn á sigur Liverpool á 90. mínútu sem situr nú í öðru sæti deildarinnar með 33 stig, tveimur á eftir City. Það var þó eitt atvik í leiknum sem mun eflaust skyggja á gleði Liverpool stuðningsmanna en Jordan Henderson fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt og verður því í banni næstu helgi gegn Everton. Úrslit dagsins:Brighton 1-1 LeicesterEverton 1-0 Cardiff Fulham 3-2 SouthamptonManchester United 0-0 Crystal PalaceWatford 0-3 LiverpoolWest Ham 0-4 Manchester City Enski boltinn