City kláraði West Ham í fyrri hálfleik Dagur Lárusson skrifar 24. nóvember 2018 16:45 Liðsmenn City fagna. vísir/getty Manchester City hélt áfram með sína leiftrandi fallegu knattspyrnu í stórsigri á West Ham á Ólumpíuleikvangnum í dag. Liðsmenn City voru ekkert að tvínóna við hlutina og náði þeir forystunni strax á 11. mínútu en það var galdramaðurinn David Silva sem skoraði markið eftir flott spil gestanna. Átta mínútum seinna var komið að Raheem Sterling að skora en þá lék Leroy Sané á nokkra leikmenn West Ham, gaf fyrir á Sterling sem gat lítið annað gert en að setja boltann í netið. Áður en flautað var til hálfleiksins kom Sané síðan City í 3-0 eftir að hann plataði Balbuena upp úr skónum. Staðan 0-3 í hálfleiknum. City hélt yfirburðum sínum í seinni hálfleiknum en þrátt fyrir það áttu liðsmenn West Ham sín færi en einfaldlega náðu ekki að nýta sér þau. City gerði síðan endanlega út um leikinn rétt fyrir leikslok en þá skoraði Leroy Sané sitt annað mark og kórónaði frábæran leik sinn. Lokatölur í London því 0-4 fyrir City sem heldur áfram velgengi sinni í deildinni og situr í efsta sæti deildarinnar með 35 stig á meðan West Ham er í þrettánda sæti með tólf stig. Viðtal við Guardiola Viðtal við Pellegrini Enski boltinn