Gylfi hetja Everton gegn Aroni og félögum Anton Ingi Leifsson skrifar 24. nóvember 2018 16:45 Gylfi er sjóðandi. vísir/getty Gylfi Þór Sigurðsson var hetja Everton er liðið vann 1-0 sigur á Cardiff í þrettándu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Goodison Park í dag. Markalaust var í hálfleik og allt þangað til á 59. mínútu. Neil Etheridge varði skot Theo Walcott en boltinn datt fyrir Gylfa sem gat ekki annað en skorað. 1-0. Everton var mun hættulegri aðilinn í leiknum og Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff komust lítt áleiðis en lokatölur 1-0 sigur heimamanna. Sjötta mark Gylfa á leiktíðinni. Everton er með sigrinum komið upp í sjötta sæti deildarinnar, upp fyrir Manchester United en Gylfi spilaði allan leikinn fyrir Everton í dag. Aron Einar spilaði einnig allan leikinn fyrir Cardiff sem er í fallsæti eins og stendur með átta stig en einungis eitt stig er upp í fjórtánda sætið. Viðtal við Marco Silva Viðtal við Neil Warnock Enski boltinn