Upphitun: Stórleikur í hádeginu Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 10. febrúar 2018 06:00
Sex leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í dag og byrjar 27. umferðin með stórslag nágrannaliðanna Tottenham og Arsenal. Bæði lið þurfa mikið á stigunum þremur að halda í baráttunni um fjórða sætið. Spurs er í 5. sæti aðeins stigi á eftir Chelsea á meðan Arsenal er í 6. sætinu, fjórum stigum á eftir Tottenham. Skytturnar koma inn í þennan leik eftir að hafa valtað yfir Everton á heimavelli sínum í síðustu umferð á meðan Tottenham gerði skrautlegt 2-2 jafntefli við Liverpool þar sem dómarinn Jonathan Moss var í aðalhlutverki. Gylfi Þór Sigurðsson er væntanlegur aftur í byrjunarlið Everton þegar liðið fær Crystal Palace heim en hann var hvíldur í stórtapinu gegn Arsenal. Palace hefur gert 1-1 jafntefli í síðustu tveimur leikjum sínum og hefur náð að skora í öllum deildarleikjum sínum á nýju ári. Burnley með Jóhann Berg Guðmundsson innanborðs ferðast suður til Wales og mætir Swansea. Svanirnir komust í fyrsta skipti í langan tíma upp úr fallsæti eftir síðustu umferð og hafa líklegast engan áhuga á að fara þangað aftur og munu því taka hressilega á móti liði sem hefur ekki unnið deildarleik síðan 12. desember. David Moyes og lærisveinar hans í West Ham taka á móti Watford í Lundúnum. Liðin eru í 11. og 12. sæti úrvalsdeildarinnar og munar þremur stigum þar á milli. Þau munu þó ekki hafa sætaskipti nema West Ham sigri með 6 marka mun þar sem markatala Hamranna er mun óhagstæðari. Stoke fær nýliða Brighton í heimsókn á bet36 völlinn. Peter Crouch og félagar eru komnir í fallsæti á markatölu en þó munar aðeins þremur stigum á þeim og Brighton í 13. sætinu. Hörku fallslagur í vændum í Miðlöndunum. Lokaleikur dagsins er svo viðureign Manchester City og Leicester á Etihad vellinum. Eftir jafnteflið við Burnley í síðustu umferð minnkaði forysta City á toppnum niður í 13 stig. Leicester gerði einnig 1-1 jafntefli í síðustu umferð og eru bæði lið því hungruð í að komast aftur á sigurbraut.Leikir dagsins: 12:00 Tottenham - Arsenal, í beinni á Stöð 2 Sport 15:00 Everton - Crystal Palace 15:00 Stoke - Brighton 15:00 Swansea - Burnley 15:00 West Ham - Watford 17:30 Manchester City - Leicester, í beinni á Stöð 2 Sport
Enski boltinn Mest lesið Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Enski boltinn Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Fótbolti „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Körfubolti Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó Íslenski boltinn KSÍ sækir um í Afrekssjóð ÍSÍ fyrir næsta ár Fótbolti Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Körfubolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu deild karla og málin gerð upp í Bestu mörkunum Sport Allt í molum hjá Barcelona í fyrsta tapinu Fótbolti Fleiri fréttir Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Stuðningsmaður safnað milljónum eftir að völlur félagsins skemmdist Markvarslan Alisson í blóð borin Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Sjá meira