Tottenham vann Lundúnarslaginn Magnús Ellert Bjarnason skrifar 10. febrúar 2018 14:30 Harry Kane hefur verið sjóðheitur í vetur. Hann var hetja Spurs í dag eins og svo oft áður. vísir/getty Tottenham vann fyrr í dag Lundúnarslaginn gegn erkifjendunum í Arsenal, 1-0. Sigurmarkið skoraði markahæsti leikmaður deildarinnar, Harry Kane, með glæsilegum skalla eftir fyrirgjöf Ben Davies af vinstri kantinum. Var þetta 23. mark Kane í deildinni. Sigurinn var verðskuldaður en gestirnir í Arsenal sköpuðu litla sem enga hættu við mark Tottenham og náði nýju mennirnir Pierre-Emerick Aubameyang og Henrikh Mkhitaryan sér ekki á strik í leiknum. Alexander Lacazette fékk frábært tækifæri í uppbótartíma til að jafna leikinn en honum voru mislagðir fæturnir og skaut hann framhjá. Með sigrinum setur Tottenham pressu á Manchester United í baráttunni um annað sæti. Eru með 52 stig, fjögur færri en United, sem eiga auk þess leik til góða. Arsenal er hins vegar í miklu basli. Þeim hefur ekki enn tekist að halda markinu hreinu á árinu og eru í sjötta sæti, heilum 24 stigum á eftir toppliði Manchester City. Enski boltinn