Greinendur spá því að hlutabréfamarkaðurinn taki við sér Kristinn Ingi Jónsson skrifar 17. janúar 2018 11:30 Búast má við því að samanlögð afkoma skráðra félaga í Kauphöllinni batni umtalsvert á þessu ári. Vísir/Stefán
Greinendur IFS og Landsbankans búast við því að hlutabréfamarkaðurinn taki við sér í ár eftir tveggja ára lækkun. Sé tekið mið af verðmötum IFS gæti markaðurinn hækkað um 30 prósent á þessu ári en hagfræðideild Landsbankans gerir ráð fyrir „hóflegri“ hækkun. Mikil óvissa sé þó fyrir hendi og þá aðallega vegna mögulegrar uppsagnar á kjarasamningum í næsta mánuði. Sérfræðingar Landsbankans telja líkur á því að samanlagður hagnaður félaga á aðallista Kauphallarinnar muni aukast á árinu eftir að hafa dregist saman í fyrra. Sterkar rekstrarundirstöður flestra skráðra félaga muni þannig verða drifkrafturinn að hlutabréfahækkunum. Er gert ráð fyrir að samanlagðar tekjur skráðra félaga vaxi um 12 prósent á árinu, EBITDA (rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta) hækki einnig um 12 prósent og hagnaður aukist um 24 prósent. Munar þar mestu um mögulegan afkomubata hjá Icelandair Group og Högum, en afkoma félaganna í fyrra olli fjárfestum og greinendum umtalsverðum vonbrigðum. Aðrir drifkraftar hlutabréfahækkana á þessu ári, að mati Landsbankans, er áframhaldandi áhugi erlendra fjárfesta á íslenskum hlutabréfum, góðar hagvaxtarhorfur og jafnvægi á gengi krónunnar, svo nokkur dæmi séu nefnd. Og jafnvel þótt lífeyrissjóðirnir hafi ekki verið virkir á hlutabréfamarkaði í fyrra telja greinendur bankans að minnkandi spurn eftir sjóðsfélagalánum, ásamt hagstæðri verðlagningu á markaðinum, geti breytt þeirri stefnu snögglega. Til viðbótar við óvissu í kjaramálum telja sérfræðingar Landsbankans að flæðisvandi muni áfram hrjá hlutabréfamarkaðinn, sér í lagi á fyrri hluta ársins. Flæði inn á markaðinn hafi verið lítið í fyrra og fyrirhugaðar skráningar Arion banka og Heimavalla á markað, sala á stórum hlut í Eimskipi og auknar erlendar fjárfestingar lífeyrissjóðanna muni ekki hjálpa til á þessu ári.Hlutabréf í Marel eru töluvert undirverðlögð að mati greinenda. Árni Oddur Þórðarson er forstjóri Marels.Vísir/ValliMarel enn undirverðlagt Greinendur IFS telja að hlutabréf í Icelandair Group, Marel, Eimskipi og fasteignafélögunum Eik og Regin geti gefið hvað mest af sér á árinu. Hvað varðar Icelandair Group benda þeir á að miðað við væntingar fluggeirans erlendis og erlendra greinenda, þá megi búast við því að meðalverð á farþega verði 1 til 2 prósentum hærra en í síðasta verðmati IFS frá því í nóvember. Styrking evrunnar gagnvart Bandaríkjadalnum geti einnig haft jákvæð áhrif á félagið, bæði rekstrarlega og fjárfestingalega. Marel er auk þess verulega undirverðlagt á markaði ef miðað er við verðmat IFS á félaginu. Sérfræðingar IFS telja að gengi hlutabréfa í félaginu ætti að fara yfir 450 krónur á hlut og enda í um 490 krónum á hlut á næstu 12 til 18 mánuðum, ef miðað er við gengið 125 krónur á evru. Til samanburðar er gengi bréfanna nú 340 krónur á hlut. Hagfræðideild Landsbankans bendir aukinheldur á að þó svo að hlutabréfin hafi hækkað um 34 prósent í verði í fyrra hafi þau lækkað um 13,8 prósent frá hæsta gildi án teljandi breytinga á undirstöðurekstri félagsins. Landsbankinn mælir með yfirvigt í hlutabréfum Marels, Eimskips og fasteignafélaganna Eikar, Regins og Reita en undirvigt í hlutabréfum fjarskipta- og tæknifélaga. Sérfræðingar bankans taka fram að samtals hafi hlutabréf fasteignafélaganna lækkað – markaðsvegið – um 4,2 prósent í fyrra, þrátt fyrir um 20 prósenta hækkun fram að maímánuði. „Lækkunin á sér stað þrátt fyrir þrjár vaxtalækkanir á árinu, hækkandi lánshæfi ríkisins, einkaneyslu í nýjum hæðum og þá staðreynd að horfur félaganna fyrir árið 2017 voru svo gott sem óbreyttar allt árið,“ segir hagfræðideildin. Hvað varðar fjarskiptafélögin, Símann og Vodafone, telja greinendur Landsbankans að þau muni ekki leiða hækkunina í Kauphöllinni í ár. Félögin hafi hækkað mikið í verði í fyrra og búið sé að verðleggja 365 inn í verð Vodafone að miklu leyti. Koma þurfi til frekari fregnir og staðfestingar á að sameining 365 og Vodafone hafi gengið framar vonum til þess að réttlæta frekari hækkun á bréfunum. Slíkrar staðfestingar sé líklega ekki að vænta fyrr en undir lok ársins eða jafnvel í byrjun árs 2019.Fréttin birtist fyrst í Markaðinum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál.
Mest lesið Verulega minni verðbólga Viðskipti innlent Fríar skólamáltíðir séu skammgóður vermir Viðskipti innlent Frá RÚV til Coca-Cola Viðskipti innlent Að hætta að vera vandræðaleg í nýrri vinnu Atvinnulíf Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Viðskipti innlent Mun leiða ferskvatnseldi hjá First Water Viðskipti innlent Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Viðskipti innlent Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Viðskipti innlent „Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ Atvinnulíf Enginn þarf að vera giftur lánunum sínum út lánstímann Samstarf Fleiri fréttir Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Þrotabú Wok on vill tugmilljóna endurgreiðslu frá Kristjáni Fríar skólamáltíðir séu skammgóður vermir Frá RÚV til Coca-Cola Verulega minni verðbólga Mun leiða ferskvatnseldi hjá First Water Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við Óvíða sem flugstarfsemi er jafn stór þáttur í efnahagslífi þjóðar Spá enn einum fundinum án breytingar Icelandair hækkað um ríflega fjórðung Munu fljúga til Nashville næsta sumar Rúv tapað nærri hálfum milljarði á árinu Átta sagt upp hjá Arion banka Bein útsending: Ársfundur Orkustofununar á Akureyri Hagnaður félags Björns Braga dróst verulega saman Ummæli seðlabankastjóra „skringileg“ Icelandair fyrsta samstarfsflugfélag bandarísks risa Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Fjármálaeftirlitið samþykkir samruna Landsbankans og TM Verður framkvæmdastjóri á hugbúnaðarsviði Origo Geta veitt fyrirtækjum hagstæðari lán Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Hrönn, Viktor og Þórdís til Varðar Ísak Einar til Samtaka atvinnulífsins Andri aðstoðarframkvæmdastjóri Júní Sunna veitir Livio samkeppni í frjósemi Enn eitt félag Quangs gjaldþrota Svekktur en ekki hissa á færri íbúðum í byggingu Sjá meira