Ritchie tjáir sig um klúður ársins: Ég mun aldrei gleyma þessu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. nóvember 2018 11:00 Matt Ritchie. Vísir/Getty
Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Newcastle United, gat hlegið að klúðri Matt Ritchie eftir leik en aðeins af því að Newcastle liðið hélt út í 2-1 sigri á Burnley. Hefði Burnley jafnað metin hefði örugglega verið allt annað hljóð í spænska stjóranum. Matt Ritchie, kantmaður Newcastle United, átti örugglega klúður ársins til þessa í ensku úrvalsdeildinni í fyrrakvöld þegar hann brenndi af fyrir framan opnu marki. Matt Ritchie ræddi klúðrið sitt í viðtali við BBC. „Þetta er skelfilegt, hræðilegt en svona er lífið og þetta bara fótboltinn,“ sagði Matt Ritchie.The ridiculousness of this probably won’t get talked about enough but our boy @yedlinny just set Matt Ritchie up with an empty netter from 5 feet out... annnnnnd he missed. pic.twitter.com/eoCTZ1MwUP — Sam's Army Podcast (@samsarmy) November 26, 2018„Ég hafði heppnina með mér í því að þetta skipti ekki máli þegar upp var staðið. Ég get því brosað að þessu en ég finn til inn í mér,“ sagði Ritchie. „Þetta er örugglega klúður sem ég mun aldrei gleyma svo lengi sem ég lifi. Ég mun passa það að svona gerist ekki aftur,“ sagði Ritchie. Ritchie segir að liðsfélagar hans í Newcastle, hafi strítt honum mikið í klefanum eftir leikinn. „Ég er viss um að það hættir ekkert í bráð,“ sagði Ritchie. „Ég vil halda áfram og komast yfir þetta. Ég er sterkur karakter og passa upp á að þetta hafi ekki áhrif á mig. Ég hef lent í mótlæti á mínum ferli og þetta er bara eitt af minni gerðinni,“ sagði Ritchie. Boltinn datt fyrir hann á markteignum fyrir framan opnu marki en hann skaut boltanum framhjá þegar miklu auðveldara var að setja hann í markið. „Ég vil skora mörk og ég vil hjálpa liðinu mínu. Ég hefði gert þetta þægilegra fyrir okkur með því að skora. Ég gerði mistök en mörkin mín munu detta inn,“ sagði Ritchie. Það má sjá þetta klúður Matt Ritchie í myndbandinu hér fyrir neðan en þar eru svipmyndir frá leiknum.Klippa: FT Burnley 1 - 2 Newcastle
Enski boltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Fleiri fréttir Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Sjá meira