Cocu vill hjálpa Alberti að komast á HM: „Hann á eftir að sýna hvers virði hann er“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 25. janúar 2018 14:15 Albert Guðmundsson lagði upp mark um helgina.
Albert Guðmundsson nýtti mínúturnar sjö sem hann fékk með aðalliði PSV Eindhoven um síðustu helgi mjög vel en hann kom inn á af bekknum og lagði upp sigurmark á móti Heracles. Albert var eðlilega með sjálfstraustið í lagi eftir að leggja upp fjögur mörk einum landsleik á móti Indónesíu og skora þrennu sem varamaður í öðrum. Framherjinn ungi hefur ekki fengið mörg tækifæri með aðalliði PSV en vonast til að þau verði fleiri. Hann er allvega búinn að segja skilið við B-liðið, Jong PSV, í bili eins og fjallað var um fyrr í vikunni. Pascal Jansen, yfirmaður unglingaakademíu PSV Eindhoven, missti ekkert hökuna í gólfið að sjá Albert gera vel um helgina því hann hefur óbilandi trú á íslenska landsliðsmanninum.„Albert var að fínstilla strengina rétt fyrir vetrarfríið þannig þetta kemur mér ekkert á óvart,“ segir Jansen í viðtali við PSV TV. „Ég er búinn að vinna með Alberti í nokkur ár. Hann er mjög hæfileikaríkur og á eftir að sýna hvers hann er virði fyrir PSV.“ Albert fór ekki í æfingaferð með PSV til Orlando í janúar heldur valdi hann að fara með íslenska landsliðinu til Indónesíu. Það var gert með samþykki Phillips Cocu, þjálfara liðsins. „Nicolai Laursen fór líka með danska liðinu þannig að þetta er ekkert nýtt. Það verður að leyfa mönnum að spila með landsliðunum ef þeir fá tækifæri þar. Albert gerði vel og skoraði þrennu,“ segir Jansen. „Cocu fór yfir þetta allt saman og þetta snýst líka um hvaða leikmenn eru líklegir til að fá tækifæri á HM í sumar. Cocu finnst HM vera stærsta sviðið og vill að menn nýti þau tækifæri sem í boði eru til að komast þangað,“ segir Pascal Jansen.
Fótbolti Tengdar fréttir Sjáðu markið sem Albert lagði upp Albert Guðmundsson lagði upp sigurmark PSV í uppbótartíma gegn Heracles á útvielli í hollensku úrvalsdeildinni í gær. 22. janúar 2018 20:45 Albert búinn að fá nóg af B-liðinu: „Þið sjáið mig ekki aftur þar í bráð“ Albert Guðmundsson lagði upp sigurmark fyrir aðallið PSV um helgina og þar vill hann spila. 23. janúar 2018 10:45 Albert er þakklátur Phillip Cocu | Fékk að velja á milli Orlando og Indónesíu Janúarmánuður ætlar að vera heldur betur eftirminnilegur fyrir hinn tvítuga Albert Guðmundsson sem er að stimpla sig inn bæði hjá A-landsliðinu og liði PSV. 23. janúar 2018 13:00 Mest lesið Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó Íslenski boltinn Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti „Ábyrgðin er mín“ Fótbolti Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti Lélegasta lið sögunnar: „Augljóslega er þetta ömurlegt“ Sport Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Enski boltinn Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Fótbolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu deild karla og málin gerð upp í Bestu mörkunum Sport „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Körfubolti Sjáðu fyrstu mörk Orra Steins í treyju Real Sociedad Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu fyrstu mörk Orra Steins í treyju Real Sociedad Vonbrigða tímabil Vals getur skorið úr um hvar titillinn endar Nökkvi Þeyr kom að marki og Messi bjargaði stigi „Ábyrgðin er mín“ Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó KSÍ sækir um í Afrekssjóð ÍSÍ fyrir næsta ár Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Allt í molum hjá Barcelona í fyrsta tapinu Sara lagði upp í fyrsta leik í Sádi-Arabíu Stöðvuðu Bayern sem missti Kane meiddan af velli Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Jóhann á sigurbraut í Sádi-Arabíu KR upp um deild og Haukar tóku við bikarnum „Þetta er bara besta móment lífs míns“ Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn „Ég bara hágrét í leikslok“ „Þetta endar eins og þetta á að enda“ Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Uppgjörið: Víkingur - Valur 1-2 | Íslandsmeistararnir fá úrslitaleik á heimavelli Uppgjörið: Breiðablik - FH 4-2 | Breiðablik vann í markaleik og mætir Val í hreinum úrslitaleik Hlín á skotskónum og Kristianstad dreymir um Evrópu Martínez dæmdur í tveggja leikja bann Utan vallar: Ungt og leikur sér Sjá meira
Sjáðu markið sem Albert lagði upp Albert Guðmundsson lagði upp sigurmark PSV í uppbótartíma gegn Heracles á útvielli í hollensku úrvalsdeildinni í gær. 22. janúar 2018 20:45
Albert búinn að fá nóg af B-liðinu: „Þið sjáið mig ekki aftur þar í bráð“ Albert Guðmundsson lagði upp sigurmark fyrir aðallið PSV um helgina og þar vill hann spila. 23. janúar 2018 10:45
Albert er þakklátur Phillip Cocu | Fékk að velja á milli Orlando og Indónesíu Janúarmánuður ætlar að vera heldur betur eftirminnilegur fyrir hinn tvítuga Albert Guðmundsson sem er að stimpla sig inn bæði hjá A-landsliðinu og liði PSV. 23. janúar 2018 13:00
Uppgjörið: Keflavík - Afturelding 0-1 | Mosfellingar í efstu deild karla í fótbolta í fyrsta sinn