Pochettino segist aldrei hafa liðið verr Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 29. október 2018 18:30 Argentínumaðurinn er ekki sáttur við forráðamenn Tottenham vísir/getty
Mauricio Pochettino segir að sér hafi aldrei liðið verr í starfi knattspyrnustjóra Tottenham en þessa dagana. Tottenham tekur á móti Manchester City í stórleik umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Leikurinn fer hins vegar ekki fram á nýjum og glæsilegum leikvangi Tottenham því enn eru margar vikur í að hann verði tilbúinn. Þess í stað fer leikurinn fram á Wembley á velli sem þurfti í gær að þola mikið áreiti þegar NFL leikur fór fram á vellinum. Pochettino segir forráðamenn Tottenham eyða of mikilli orku og peningum í að klára völlinn og frammistaða liðsins hafi fallið í goggunarröðinni. Pochettino fékk ekki að kaupa einn einasta leikmann í sumar, eini stjórinn í deildinni sem fékk ekkert nýtt blóð inn fyrir komandi tímabil. Þrátt fyrir það hefur Tottenham byrjað betur í deildinni heldur en síðustu fimm tímabil. „Á þessu tímabili hefur mér liðið verr en nokkru sinni áður hjá Tottenham. Samt er byrjun okkar sú besta. Þetta er skrítið,“ sagði Pochettino við The Times. „Ég er vonsvikinn yfir því að við erum enn að bíða eftir nýja vellinum þegar hann átti að vera tilbúinn í upphafi tímabilins. Það gerðist mikið í sumar sem veldur því að ég er ekki í besta skapinu.“ „Félagið er ekki einbeitt á að vinna leiki og titla. Við, liðið, erum einbeittir á að vinna en félagið þarf að gera það líka.“ Með sigri í kvöld fer Tottenham upp fyrir Englandsmeistarana og í þriðja sæti deildarinnar. Leikur Tottenham og Manchester City hefst klukkan 20:00 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Enski boltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Körfubolti Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Unga hjólreiðakonan látin Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Fleiri fréttir Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Sjá meira