73 prósent af peningum ensku liðanna fóru í erlenda leikmenn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. ágúst 2018 10:00 Glenn Murray í baráttu við Svíann Victor Lindelof hjá Manchester United. Vísir/Getty
800 milljónir punda af þeim tólf hundruð milljónum sem liðin í ensku úrvalsdeildinni eyddu í nýja leikmenn í sumar fóru í útlenda leikmenn. Enski knattspyrnumaðurinn Glenn Murray, sem hefur verið að gera góða hluti með liði Brighton, hefur áhyggjur af stöðu mála. Murray sér leiðina í dag vera alltof torsótta fyrir enska leikmenn að vinna sig upp úr neðri deildunum og inn í úrvalsdeilderliðin. Hann telur að enska knattspyrnan sé að missa af tækifæri til að rækta upp hæfileikaríka enska leikmenn.£880m of a £1.2bn transfer outlay was spent on overseas players in the summer by Premier League clubs. And Glenn Murray believes young English talent is being missed.https://t.co/ukIjkRMMACpic.twitter.com/rec0o2Ucjq — BBC Sport (@BBCSport) August 21, 2018„Það eru leikmenn í ensku b-deildinni sem gætu auðveldlega spilað í úrvalsdeildinni en sumir fá aldrei tækifæri til þess. Oft er litið framhjá þeim af því að liðin eru að horfa til erlendra leikmanna,“ sagði Glenn Murray við BBC. „Við sjáum að sum liðin sem voru að koma upp hafa losað sig við leikmenn og keypt stærri nöfn. Ég er þakklátur fyrir að okkar knattspyrnustjóri [Chris Hughton] gerði það ekki,“ sagði Glenn Murray.Points & Goals - Off the mark for 18/19 #BHAFCpic.twitter.com/6fYjKOIUat — Glenn Murray (@GM_83) August 19, 2018Glenn Murray er 34 ára gamall en skoraði 12 deildarmörk á síðustu leiktíð þar sem Brighton liðið náði fimmtánda sæti á sínu fyrsta tímabili í efstu deild í 34 ár. Murray skoraði síðan í sigurleik á móti Manchester United um helgina en hann hefur verið duglegur að skora á móti risunum í ensku úrvalsdeildinni. „Okkar stjóri gaf öllum tækifæri sem hjálpuðu félaginu að komast upp í ensku úrvalsdeildina. Ég tel að flestir okkar hafi nýtt það tækifæri,“ sagði Murray.Glenn Murray reflected on his Albion career, after scoring against @ManUtd... “It seems a long time since that first game for Brighton away at Northampton on a Tuesday night, but both me and the club have come a long way."#BHAFC Read https://t.co/fi9xbUvqpXpic.twitter.com/pT90Q7bSzV — Brighton & Hove Albion (@OfficialBHAFC) August 20, 2018
Enski boltinn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Körfubolti Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira