Bournemouth flengdi Chelsea Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 31. janúar 2018 21:45 Bournemouth gengur ágætlega gegn toppliðunum þetta tímabilið, vann fyrsta deildarsigur sinn í sögunni á Arsenal og skelltu Chelsea á Brúnni vísir/getty Englandsmeistararnir í Chelsea fengu flengingu á heimavelli frá Eddie Howe og hans mönnum í Bournemouth. Hvorugt lið náði að skora í fyrri hálfleik en þrjú mörk frá Bournemouth á tæpum tuttugu mínútna kafla í seinni hálfleik kláraði leikinn. Callum Wilson kom gestunum yfir á 51. mínútu eftir samspil við Jordon Ibe. Junior Stanislas tvöfaldaði svo forystuna á 64. mínútu. Fyrrum Chelsea maðurinn Nathan Ake veitti svo rothöggið aðeins þremur mínútum síðar þegar hann skoraði eftir að varnarmenn Chelsea hreinsuðu ekki almennilega eftir hornspyrnu og boltinn datt fyrir Ake í teignum. Ef horft er til tölfræðinnar átti Chelsea þó skilið að vinna þennan leik, með 21 skot á móti 11 frá Bournemouth og 65 prósent með boltann. Það er hins vegar ekki spurt út í tölfræðina, varnarleikur Chelsea var oft á tíðum lélegur í dag og áttu leikmenn Bournemouth skilið að skora mark. Þetta var fyrsti útisigur Bournemouth í síðustu sjö leikjum þeirra og jafnframt stærsta tap Chelsea á tímabilinu. Enski boltinn