Messan um fall Stoke: „Trúi því ekki að hann sé rétti maðurinn“ Anton Ingi Leifsson skrifar 8. maí 2018 23:30
Stoke er fallið niður í B-deildina eftir tap gegn Crystal Palace á laugardaginn. Gestir Messunnar á sunnudag höfðu báðir tengingu við Stoke en Hjörvar Hafliðason var á mála hjá Stoke á meðan Guðjón Þórðarson, faðir Jóhannesar Karls, þjálfaði Stoke um tíma. „Ég er enn að svekkja mig á því að Stoke hætti að vera Tony Pulis lið og fór yfir í Mark Hughes sem gerði alveg ágæta hluti. Þeir láta hann fara og velja Paul Lambert,” sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, einn spekinga þáttarins. „Ég horfði á þennan leik og þeir voru aldrei líklegir til að vinna þennan leik. Þeir voru illa skipulagðir og við sáum það í mörkunum áðan að varnarleikurinn var út um allt. Það var bara erfitt að finna öftustu fjóra.” Leikmannakaup Stoke voru afar skrýtin og nú síðast í gær steig Jack Butland, markvörður liðsins, fram og hraunaði yfir þá sem stjórna leikmannakaupum hjá liðinu. En hvaða breytingar verða á liðinu núna? „Shaqiri er farinn, Jack Butland sem Bretarnir halda að sé einhver af besti ungum markvörðum í heiminum fer. Það er stórkostlegur misskilningur. Hann hefur ekkert getað í vetur,” sagði Hjörvar Hafliðason. Jóhannes Karl hefur enga trú á því að Paul Lambert sé rétti maðurinn til að leiða Stoke aftur upp í deild þeirra bestu. „Fyrir mann sem er að skipuleggja úrslitaleik eins og Paul Lambert í þessum leik. Að skipulagið hafi verið svona skelfilega lélegt; ég trúi því ekki að maðurinn geti verið sá rétti til að stýra liðinu til framtíðar,” sagði Jóhannes. Allt innslagið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Fótbolti Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Fleiri fréttir Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Sjá meira