Jóhann Berg „leikmaður sem á að fylgjast með“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 29. janúar 2018 20:15 Jóhann Berg er hér í baráttu við Luke Shaw á Old Trafford. vísir/getty
Næstu kaup þín í Fantasyleik ensku úrvalsdeildarinnar eiga að vera Jóhann Berg Guðmundsson samkvæmt njósnara leiksins. Á heimasíðu ensku úrvalsdeildarinnar er hægt að taka þátt í svokölluðum Fantasy deildum, þar sem spilarar fá ákveðna upphæð og eiga að setja saman lið úr leikmönnum úrvalsdeildarinnar og fá stig eftir því hvernig leikmönnunum gengur í leikjum sínum. Í hverri viku bendir njósnarinn á nokkra leikmenn sem vert er að fylgjast með og kaupa í lið sitt og í þessari viku er Jóhann Berg Guðmundsson einn af þeim sem verðugt er að fjárfesta í. Jóhann Berg hefur búið til 14 marktækifæri í síðustu fjórum umferðum, sem er betri árangur en hjá nokkrum öðrum miðjumanni. Þar af eru þrjú stór tækifæri þar sem búist var við því að leikmaðurinn sem fékk færið myndi skora. Í fyrstu tuttugu umferðunum bjó Jóhann til marktækifæri á 62 mínútna fresti. Nú er sú tala hins vegar komin niður í marktækifæri á 25 mínútna fresti. Burnley mætir Newcastle í næstu umferð. Newcastle hefur fengið á sig 18 skot úr föstu leikatriði í síðustu fjórum umferðum. Jóhann Berg tekur orðið allar hornspyrnur Burnley eftir meiðsli Robbie Brady og nærri helmingur spyrna hans síðustu umferðir hefur skilað af sér skoti á markið. Góður árangur Burnley úr hornspyrnum og slakur varnarleikur Newcastle í föstum leikatriðum er líkleg uppskrift að góðum árangri. Þá spáir njósnarinn góðum árangri hjá Jóhanni Berg í næstu umferðum því leikjaplan Burnley er nokkuð vænlegt, að undanskildri heimsókn Manchester City. Næstu fimm umferðir Burnley eru gegn Newcastle, City, Swansea, Southampton og Everton.
Enski boltinn Mest lesið Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó Íslenski boltinn Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti „Ábyrgðin er mín“ Fótbolti Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Enski boltinn Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Fótbolti „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Körfubolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu deild karla og málin gerð upp í Bestu mörkunum Sport KSÍ sækir um í Afrekssjóð ÍSÍ fyrir næsta ár Fótbolti Lélegasta lið sögunnar: „Augljóslega er þetta ömurlegt“ Sport Fleiri fréttir Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Stuðningsmaður safnað milljónum eftir að völlur félagsins skemmdist Markvarslan Alisson í blóð borin Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Sjá meira