Batshuayi skoraði tvö er Chelsea komst áfram Dagur Lárusson skrifar 28. janúar 2018 15:30 Michy Batshuayi fagnar í dag Vísir/Getty Belginn Michy Batshuayi skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Chelsea á Newcastle í enska bikarnum í dag. Liðsmenn Newcastle mættu ákveðnir til leiks og spiluðu vel til að byrja með og sköpuðu sér nokkur ágætis marktækifæri. Það leið þó ekki á löngu fyrr en Chelsea tók völdin á vellinum. Á 31. mínútu átti Chelsea flotta skyndisókn sem endaði með því að Belginn Michy Batshuayi skilaði boltanum í netið og kom sínum mönnum í forystu. Allt stefndi í það að staðan yrði 1-0 í leikhlé þar til Chelsea vann boltann á vallarhelmingi Newcastle á 44. mínútu. Hazard, Pedro og Michy Batshuayi spiluðu þá á milli sem endaði með því að Batshuayi skoraði, en skot hans fór af varnarmanni og inn. Marcos Alonso skoraði síðan þriðja mark Chelsea beint úr aukaspyrnu á 72. mínútu og innsiglaði sigur Chelsea sem er nú komið áfram í fimmtu umferð bikarsins. Enski boltinn
Uppgjörið: FH - Breiðablik 0-1 | Kristinn kom Blikum á toppinn með marki úr hornspyrnu Íslenski boltinn
Uppgjörið: FH - Breiðablik 0-1 | Kristinn kom Blikum á toppinn með marki úr hornspyrnu Íslenski boltinn