Auðvelt hjá Leicester í Peterborough Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 27. janúar 2018 14:30 Jamie Vardy, framherji Leicester. vísir/getty Úrvalsdeildarlið Leicester átti ekki í miklum erfiðleikum með C-deildar lið Peterborough í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar. Peterborough fékk skell strax í upphafi leiks þegar Fousseni Diabate skoraði á 9. mínútu eftir fyrirgjöf Adrien Silva. Aðeins þremur mínútum seinna var Leicester búið að tvöfalda forystu sína með marki frá Kelechi Iheanacho. Iheanacho var svo aftur á ferð eftir hálftíma leik og kom Leicester í 3-0 forystu. Þannig var staðan þegar liðin gengu til leikhlés og vonin veik fyrir Peterborough. Andrew Hughes kom heimamönnum þó aftur inn í leikinn með marki úr hornspyrnu á 58. mínútu. Heimamenn höfðu því hálftíma til þess að skora tvö mörk og jafna leikinn. Það gekk þó ekki að koma boltanum í neitið og í staðinn bætti Diabate öðru marki sínu og fjórða marki Leicester við á 87. mínútu og gerði út um leikinn. Wilfred Ndidi sló svo síðasta naglann í kistuna í uppbótartíma með fimmta marki Leicester. 5-1 sigur og Leicester fer áfram í fimmtu umferð keppninnar. Enski boltinn
Uppgjörið: FH - Breiðablik 0-1 | Kristinn kom Blikum á toppinn með marki úr hornspyrnu Íslenski boltinn
Uppgjörið: FH - Breiðablik 0-1 | Kristinn kom Blikum á toppinn með marki úr hornspyrnu Íslenski boltinn