Hörður Björgvin baðst innilegrar afsökunar á þessum mistökum | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 24. janúar 2018 09:30 Hörður Björgvin Magnússon og félagar eru úr leik. vísir/getty
Hörður Björgvin Magnússon, landsliðsmaður í fótbolta, var í byrjunarliði Bristol City í seinni leik liðsins gegn Manchester City í undanúrslitum enska deildabikarsins í gærkvöldi. Hörður spilaði sem miðvörður og gerðist sekur um slæm mistök undir lok fyrri hálfleiks þegar að Leroy Sane kom City yfir á sjálfri markamínútunni með skoti úr teignum. Í aðdraganda marksins reyndi Hörður Björgvin að skýla boltanum aftur fyrir endamörk en það gekk ekki betur en svo að Bernardo Silva hirti af honum boltann og lagði upp markið fyrir þann þýska. City komst í 2-0 áður en Bristol jafnaði í 2-2 í seinni hálfleik en það var svo Kevin De Bruyne sem tryggði toppliði úrvalsdeildarinnar 3-2 sigur með marki í uppbótartíma. City vann einvígið í heildina, 5-3. Hörður Björgvin er í góðum tengslum við stuðningsmenn Bristol í gegnum Twitter og nýtti samfélagsmiðilinn til að koma á framfæri afsökunarbeiðni eftir leikinn í gær.„Þetta var stórt kvöld fyrir okkur. Við komumst svo langt og við sýndum öllum að við getum afrekað stóra hluti. Ég biðst innilegrar afsökunar á mistökum mínum í kvöld en ég mun læra af þeim. Nú þurfum við bara að einbeita okkur að deildinni og ég ætla að gera mitt besta fyrir þetta félag sem mér er svo annt um. Áfram City,“ skrifaði Hörður Björgvin á Twitter-síðu sína. Bristol City er í fínum málum í deildinni en liðið er með 48 stig í fimmta sæti eftir 28 umferðir, fimm stigum frá öðru sætinu. Hér fyrir ofan má sjá mistökin sem Hörður Björgvin gerði í fyrsta marki Manchester City.Tonight was a big night for us. We made it so far and showed everyone we are capable of greater things. I'm truly sorry for my mistake tonight and will learn from it. Now we focus on the league and do my best for a club I care about. Up the City #MakingBristolProud— Hörður B. Magnússon (@HordurM34) January 23, 2018
Enski boltinn Mest lesið Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó Íslenski boltinn „Ábyrgðin er mín“ Fótbolti Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Enski boltinn Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Fótbolti „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Körfubolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu deild karla og málin gerð upp í Bestu mörkunum Sport KSÍ sækir um í Afrekssjóð ÍSÍ fyrir næsta ár Fótbolti Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Körfubolti Fleiri fréttir Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Stuðningsmaður safnað milljónum eftir að völlur félagsins skemmdist Markvarslan Alisson í blóð borin Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Sjá meira