Innlent

Harður árekstur á Vesturlandsvegi

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Ekki fást frekari upplýsingar um slysið að svo stöddu.
Ekki fást frekari upplýsingar um slysið að svo stöddu. Vísir/Hanna
Harður árekstur varð á Vesturlandsvegi undir Úlfarsfelli um fimmleytið í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu eru slökkviliðsmenn og sjúkraflutningamenn að störfum á vettvangi. 

Ekki er vitað hvort einhver sé slasaður og ekki fást frekari upplýsingar um slysið að svo stöddu.

Uppfært 18:36:

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var einn fluttur á slysadeild. Hann er ekki talinn alvarlega slasaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×