Upphitun: Gylfi og Jóhann Berg í beinni útsendingu Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 3. febrúar 2018 09:00
Sjö leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar 26. umferðinn fer af stað. Dagurinn byrjar einstaklega vel með heimsókn Pep Guardiola og hans manna til Jóhanns Berg Guðmundssonar og liðsfélaga í Burnley á Turf Moor í hádeginu. City er með 15 stiga forskot á toppi deildarinnar eftir sigur á WBA í síðustu umferð. Burnley gerði 1-1 jafntefli við Newcastle í vikunni sem tók liðið upp í 7. sæti deidlarinnar. Þrátt fyrir góða stöðu hefur Burnley ekki unnið deildarleik síðan 12. desember og verður það hægara sagt en gert að breyta því í dag. Aðeins átta stig skilja að botnlið WBA og Bournemouth í 10. sætinu. Það eru þrír slagir liða í þessum pakka klukkan þrjú. WBA og Southampton mætast í virkilegum fallslag en liðin eru bæði í fallsæti fyrir umferðina. Southampton í því 18. og WBA er á botninum. Þá mætir Stoke í heimsókn til Bournemouth og nýliðar Brighton taka á móti David Moyes og lærisveinum hans í West Ham. Það er ljóst að hvert einasta stig skiptir miklu máli í þessari baráttu neðri hlutans, þá sérstaklega þegar liðin mætast innbyrðis. Á sama tíma mætir Leicester Swansea, en Svanirnir komustu upp af botninum í vikunni með mögnuðum sigri á Arsenal. Þá tekur Jose Mourinho á móti David Wagner þegar Huddersfield mætir á Old Trafford. United þarf að bæta fyrir hamförina sem var viðureignin gegn Tottenham á Wembley á miðvikudaginn. Lokaleikur dagsins er svo stórleikur Arsenal og Everton á Emirates vellinum. Arsenal fékk vægan skell í Wales í vikunni á meðan Gylfi Þór Sigurðsson lagði upp mark í sigri Everton á Leicester. Arsenal þarf nauðsynlega að næla sér í sigur ef liðið ætlar ekki að missa af baráttunni um fjórða sætið. Eins og er situr Arsene Wenger með sína menn í 6. sæti, sex stigum á eftir Tottenham í 5. sætinu.Leikir dagsins: 12:30 Burnley-Manchester City, beint á Stöð 2 Sport 15:00 Bournemouth - Stoke 15:00 Brighton - West Ham 15:00 Leicester - Swansea 15:00 Manchester United - Huddersfield, beint á Stöð 2 Sport 15:00 West Bromwich Albion - Southampton 17:30 Arsenal - Everton, beint á Stöð 2 Sport
Enski boltinn Mest lesið Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó Íslenski boltinn Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti „Ábyrgðin er mín“ Fótbolti Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti Lélegasta lið sögunnar: „Augljóslega er þetta ömurlegt“ Sport Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Enski boltinn Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Fótbolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu deild karla og málin gerð upp í Bestu mörkunum Sport „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Körfubolti Sjáðu fyrstu mörk Orra Steins í treyju Real Sociedad Fótbolti Fleiri fréttir Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Stuðningsmaður safnað milljónum eftir að völlur félagsins skemmdist Markvarslan Alisson í blóð borin Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Sjá meira