Vandræði WBA halda áfram 17. febrúar 2018 16:45 WBA er í miklum vandræðum. vísir/getty Southampton er komið í átta liða úrslit enska bikarsins eftir 2-1 sigur á vandræðaliði West Bromwich Albion, en leikmenn WBA höfðu verið mikið í umræðunni síðasta sólarhring fyrir miður gáfuleg atvik. Fréttir bárust af því í gær að Johnny Evans, Gareth Barry og fleiri væru grunaðir um að stela leigubíl á Spáni, en lesa má meira um málið hér. Evans og Barry voru báðir í byrjunarliðinu í dag, en Weshley Hoedt kom Southampton yfir á 11. mínútu og þannig stóðu leikar í hálfleik. Dusan Tadic tvöfaldaði forystuna fyrir gestina á 56. mínútu, en einungis andartaki síðan minnkaði Salomon Rondon muninn með geggjuðu marki. Nær komust heimamenn ekki og eru úr leik í enska bikarnum, en liðið er einnig á botni ensku úrvalsdeildarinnar. Southampton er hins vegar komið í átta liða úrslitin. Enski boltinn