Innlent

Íþróttafélög og önnur félagasamtök setji sér siðareglur

Gissur Sigurðsson skrifar
Frá Ísafirði.
Frá Ísafirði. Vísir/Pjetur
Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur ákveðið að setja það skilyrði fyrir fjárveitingum til íþróttafélaga og annarra félagasamtaka, sem bjóða upp á frístundaiðkun fyrir börn og unglinga, að félögin setji sér siðareglur.

Jafnframt verði gerðar viðbragðsáætlanir og þjálfarar og annað umsjónarfólk fái fræðlsu um ofbeldi og kynferðislega áreitni. Þá eiga félögin að tilgreina trúnaðaarmann í viðbragðsáætlun og ætlar bærinn að fylgjast með því að þessu sé framfylgt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×